Skólahljómsveit
Skólahljómsveit Kópavogs var stofnuð á haustmánuðum 1966. Stofnandi sveitarinnar var Björn Á. Guðjónsson, trompetleikari, og stjórnaði hann hljómsveitinni óslitið og af miklum dugnaði fram til ársins 1993 þegar Össur Geirsson tók við stjórninni. Að jafnaði eru um 170 hljóðfæraleikarar í Skólahljómsveit Kópavogs á hverjum vetri og er þeim skipt í þrjár sveitir eftir aldri og getu. Í A-sveit eru yngstu hljóðfæraleikararnir, úr 4.-6. bekk grunnskóla, í B-sveit nemendur úr 6.-8. bekk og í C-sveitinni eru krakkar úr 8.-10. bekk auk nokkurra eldri félaga.
Hljómsveitirnar gegna veigamiklu hlutverki í bæjarsamfélaginu og koma þær oft fram á hátíðum og athöfnum í bænum. Að jafnaði koma sveitirnar fram um 90 sinnum á ári. Haldnir eru tvennir stórir tónleikar á hverjum vetri, svokallaðir haust- og vortónleikar, en svo eru hljómsveitirnar að spila við ýmis tækifæri þar fyrir utan.
Kennt er á hljóðfæri samkvæmt námsskrá tónlistarskóla. Tónfræði er kennd í hljóðfæratímum sem og í sér tónfræðitímum fyrir þá lengra komnu. Kennsla hófst í lok ágúst.
Það er mikil aðsókn í Skólahljómsveit Kópavogs og aldrei komast allir að sem sækja um skólavist. Þeir sem ekki komast að í fyrstu tilraun fara á biðlista sem tekið er af eftir því sem pláss losna.
Vefur Skólahljómsveitarinnar er: http://skolahljomsveit.kopavogur.is/
Stjórnandi hljómsveitarinnar er Össur Geirsson.
