Starfsreglur og markmið
Starfsreglur og markmið
Starfsreglur Vinnuskóla Kópavogs
- Nemendur hlíta fyrirmælum leiðbeinanda.
- Nemendur sýna kurteisi og tillitsemi í starfi.
- Nemendur eru stundvísir.
Starfsreglur á vinnustaðnum
Nemendum ber að:
- Fylgja skólareglum Vinnuskólans.
- Virða að Vinnuskólinn er tóbakslaus vinnustaður.
- Stundvís er skilyrði.
- Fara vel með verkfæri.
- Sýna vinnuvirðingu.
- Stunda vinnuna samviskusamlega.
- Fara eftir leiðbeiningum og fyrirmælum leiðbeinanda.
- Útvega sinn hlífðarfatnað.
- Nota ekki farsíma í vinnunni.
- Taka ábyrgð á eigin fötum og eigum.
Markmið Vinnuskóla Kópavogs
- Að hafa ánægju af því að skila góðu verki.
- Að hafa ánægju af því að fegra bæinn.
- Að unglingar læri að hegða sér á vinnustað.
- Að unglingar læri vinnubrögð og meðferð verkfæra.
- Að unglingar læri að umgangast bæinn okkar.
- Að auka færni unglinga í samskiptum við aðra.
- Að auka virðingu unglinga fyrir umhverfinu.
- Að halda uppi félagslífi unglinga yfir sumarið.
- Að veita unglingum launaða sumarvinnu.
