Um Vinnuskóla Kópavogs

Um Vinnuskóla Kópavogs

Vinna í skólanum er í senn uppeldi, afþreying og tekjusköpun fyrir unglingana. Unglingunum er kennt að umgangast verkefni sín, notkun verkfæra og að bera virðingu fyrir samstarfsfólki sínu. Í skólanum eru gerðar kröfur til unglinganna eða eins og segir á umsóknareyðublaði skólans þá tekur sá sem fær vinnu í skólanum að sér að:

vinna samviskusamlega þau verk sem honum eru falin og sýna kurteisi í samskiptum við stjórnendur skólans og bæjarbúa

Lögð er áhersla á að unglingarnir klæði sig eftir veðri og hafi með sér nesti að heiman. Verði unglingi það á að brjóta reglur skólans er honum gefið tækifæri til að bæta sig áður en hann er sendur launalaus heim. Skólinn er ekki einungis vinna heldur er þar líka félagslíf, eins og í öðrum skólum. Haldnar eru nokkrar skemmtanir og íþróttakeppni á milli flokka og einstaklinga.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica