Félagsstarf aldraðra
  • Félag eldriborgara í Kópavogi

Félagsstarf aldraðra

Félagsstarf aldraðra er mjög öflugt í Kópavogi. Starfrækt eru þrjú félagsheimili:

Bæklingur um Gjábakka og Gullsmára 

Félagsheimilin eru opin frá kl 9:00 til 17:00 alla virka daga. Þar er hægt að setjast niður í notalegu umhverfi yfir kaffibolla og heimabökuðu meðlæti, lesa dagblöðin, horfa á sjónvarp, hlusta á útvarp og ræða málin.

Hádegisverður er framreiddur frá kl. 11:40 – 12:20 alla virka daga. Hádegisverð þarf að panta fyrir kl. 10:00 í síma 554-6611 (Gjábakki) eða síma 564-5260 (Gullsmári). Hægt er að fá heimsendan mat að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, nánari upplýsingar um heimsendan mat veita þjónustustjórar félagslegrar heimaþjónustu í síma 570-1500.

Félagsheimilin eru opin fólki á öllum aldri óháð félagsaðild, en sú starfsemi sem er niðurgreidd er eingöngu ætluð eldra fólki, búsettu í Kópavogi.

Forstöðumenn félagsheimilanna eru:

Boðinn. Sigún Guðmundsdóttir. Netfang: sigrungudm(hjá)kopavogur.is

Gullsmári. Sigrún Þorláksdóttir. Netfang: sigrunth(hjá)kopavogur.is 

Gjábakki. Jóhanna Hauksdóttir. Netfang: johannah(hjá)kopavogur.is

 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica