Garðlönd
  • Gardlond

Matjurtagarðar

Garðlönd

Kópavogsbær hefur um langt árabil leigt út matjurtagarða, sk. garðlönd, og hefur sú starfsemi verið i höndum garðyrkjustjóra.

Hvert garðland er 25 m2 að stærð og leigugjald er 2.500 kr. sumarið 2011. Hver leigjandi getur verið með tvo skika, þ.e. 50 m2, en skilyrði fyrir úthlutun er að eiga lögheimili í Kópavogi.

Garðlönd eru í boði á eftirfarandi stöðum:  Fossvogsbrún (Meltungu), Kjarrhólma (Mörk), Kópavogstún, (neðan Sunnuhlíðar), þar sem skólagarðar voru áður, Núpalind (ofan við leikskólann Núp), þar sem skólagarðar voru áður.

Gert ráð fyrir að úthlutað verði um 250 garðlöndum í ár.

Garðlöndin verða afhent plægð og merkt um miðjan maí, ef veður leyfir, og eins og áður verður á staðnum komið fyrir skiltum sem sýna legu garða og lista yfir leigjendur. Á öllum stöðunum er aðgangur að vatni. Sú nýbreytni verður tekin upp að hafa verkfæri, s.s. skóflur, gaffla, hrífur, vatnskönnur og hjólbörur, á staðnum fyrstu vikurnar, þó ekki sé hægt að tryggja að alltaf verði nóg fyrir alla.

Umsókn um garðland





Þetta vefsvæði byggir á Eplica