Tómstundastyrkir
  • Dansskóli Sig. Hákonarsonar

Tómstundastyrkir

Niðurgreiðsla æfingagjalda 2012- 2013

Kópavogsbær veitir foreldra / forráðamanna barna á aldrinum 5-17 ára styrki vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar. Frá og með haustinu 2012 verður greiddur styrkur vegna barna sem fædd eru á árunum 1995 - 2007. Hér að neðan má sjá lista yfir þá aðila sem falla undir Niðurgreiðslur æfingagjalda. 

Tónlist, tónlistarnám og líkamsræktarkort falla ekki undir niðurgreiðslu æfingagjalda.

Styrkur fyrir eina grein getur orðið allt að 12 þúsund krónur á ári. Hvert barn getur fengið niðurgreiðslu vegna 2 íþrótta- og/eða tómstundagreina og samtals getur styrkurinn því orðið kr. 24.000,- að hámarki á ári. Ef iðkun greinar er annarskipt þá er greitt hálft gjald fyrir hverja önn að hámarki kr. 6.000,-, þó aldrei hærra en kr. 12.000,- fyrir árið.

Framkvæmd niðurgreiðslunnar er þannig háttað að íþróttafélögin innheimta æfingagjöldin og sjá um að sækja styrkinn til bæjarins. Þetta þýðir að ef æfingagjald á ársgrundvelli er kr. 30.000,- greiðir foreldri/forráðamaður kr. 18.000,- til félagsins og félagið sækir framlagið kr. 12.000,- til bæjarfélagsins. Þetta á einnig við um Skátafélagið Kópa og Myndlistaskóla Kópavogs. 

Iðkendur sem eru í tómstundafélagi og þeir sem stunda tómstundir og íþróttir utan Kópavogs en eiga lögheimili í bæjarfélaginu, eða forráðamaður þeirra, þurfa að sækja styrkinn í þjónustuver Kópavogsbæjar, Fannborg 2, 1. hæð. Með framvísun greiðslukvittunar fyrir viðkomandi grein verður styrkurinn greiddur út.

Reglur og skilyrði fyrir styrk vegna niðurgreiðslu æfingagjalda eru eftirfarandi;

  1. Að barnið eigi lögheimili í Kópavogi.
  2. Að barnið iðki íþróttir/tómstundir á ársgrundvelli.
  3. Iðkandi getur aðeins fengið niðurgreiðslu vegna 2 íþrótta- og/eða tómstundagreina.
  4. Styrkur getur aldrei orðið hærri en æfingagjald viðkomandi íþrótta- / tómstundagreinar.
  5. Hámarksstyrkur á hverja grein er kr. 12.000,-
  6. Við greiðslu æfingagjalda kemur styrkurinn til frádráttar æfingagjaldi.
  7. Til að félögin/iðkendur fái styrkinn greiddan frá ÍTK þarf að framvísa staðfestingu á greiðslu æfingagjalda fyrir viðkomandi iðkanda.
  8. Til að einstaklingar sem stunda tómstundir eða íþróttir utan Kópavogs fái styrkinn þarf að framvísa staðfestingu á greiðslu æfingagjalda fyrir viðkomandi iðkanda.

Að um sé að ræða skipulagt íþrótta- og tómstundastarf.
Styrkhæf starfsemi þarf að vera í 10 vikur samfellt hið minnsta.


Mikilvægt er að greiðslukvittanir berist tímanlega fyrir hverja önn. Með önn er átt við haustönn (frá 1.júlí – 31.des) og vorönn (frá 1.jan – 30.júní). Aðeins er greitt fyrir eina önn aftur í tímann. Berist greiðslukvittun ekki innan þessa tíma fellur greiðslan niður.

Íþróttaráð Kópavogs

Listi yfir félög

Undir Niðurgreiðslu æfingagjalda falla öll íþrótta- og ungmennafélög í Kópavogi auk félaga utan Kópavogs sem eru með skipulagt íþróttastarf. Einnig falla öll Skátafélög sem eru með skipulagða starfsemi undir niðurgreiðsluna þó að þau séu ekki skráð á meðfylgjandi lista.

Breytingar voru gerðar á listanum í janúar 2010 og þá var sönglistarnámskeiðum bætt við. Nemar á þessum námskeiðum eiga því rétt á niðurgreiðslu frá janúar 2010.

Aðilar sem falla undir niðurgreiðslu æfingagjalda hjá Kópavogsbæ eru eftirtaldir:

Dans – Natasha Monay Royal
CrossFit Reykjavík 
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar GKG
Hafna- og mjúkboltafélag Reykjavíkur
Heilsuakademían - Dans
Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar
Íþróttafélagið Ösp
Íþróttaskóli Latabæjar - Sporthúsinu
Mímir - Leiklistarnámskeið og myndlistarnámskeið 
Myndlistaskólinn í Reykjavík
Skautafélag Reykjavíkur
Skautafélagið Björninn
Skylmingafélag Reykjavíkur
Sporthúsið - Dans
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur
Víkinghestar ehf.
World Class - Dans


Hjá eftirtöldum aðilum er niðurgreiðslan dregin af æfingagjöldum og félagið innheimtir styrkinn til bæjarins:

Breiðablik
Dansíþróttafélag Kópavogs (DÍK)
Dansfélagið Hvönn
Handknattleiksfélag Kópavogs
Íþróttafélagið Gerpla
Myndlistaskóli Kópavogs
Skátafélagið Kópar
Tennisfélag Kópavogs

Íþróttaráð Kópavogs
Frístunda - og forvarnanefnd Kópavogs