Umhverfi og skipulag

Umhverfi og skipulag

Skipulag SalirUndir flokkinn umhverfi og skipulag eru verkefni sem varða skipulag, umhverfismál, byggingarmál og framkvæmdir og fasteignir á vegum bæjarins.

Framkvæmdir og tæknimál eru t.d. gatna,- vatns- og fráveitukerfi, byggingar skóla og leikskóla, brunavarnir, viðhald á fasteignum bæjarins, garðyrkja, áhaldahús, landupplýsingakerfi og vinnuskóli.

Umhverfismál tengjast flestöllum málaflokkum. Meginverkefni í umhverfismálum eru stefnumörkun og þróun umhverfismála, Staðardagskrá 21, eftirlit, fræðsla og ráðgjöf.

Skipulagsmál eru allar breytingar og þróun í skipulagsmálum. Þar er stefnan mótuð um landnotkun til framtíðar. Hluti af skipulagsmálum eru svæðisskipulag, aðalskipulag og deiliskipulag, stefna til framtíðar í þeim málum, breytingar á þeim og ráðgjöf og fræðsla til íbúa um þau mál.

Byggingarmál fela í sér útgáfu byggingarleyfa þegar uppáskrift hönnunarstjóra, byggingarstjóra og iðnmeistara hefur verið skilað inn ásamt öllum viðeigandi teikningum og gjöld verið greidd. Úttektir mannvirkja tilheyra þessum málaflokki sem og fasteignaskráning og álagning fasteignagjalda.

Símsvörun sviðsins er í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Fannborg 2, 1. hæð.

Lóðaleigusamningar eru í umsjón almennrar skrifstofu sem einnig er staðsett að Fannborg 2, 3. hæð.

Teikningar eru afgreiddar á skrifstofu skipulags- og byggingardeildar að Fannborg 6, 2. hæð.

 

 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica