Byggingarmál

Byggingarmál

Þegar búið er að ganga frá úthlutun lóðar milli Kópavogsbæjar og lóðarhafa - sjá lausar lóðir - velur lóðarhafi sér hönnuð til að teikna hús á umrædda lóð. Hönnuður skilar inn aðalteikningum ásamt skilmálateikningu og sækir um byggingarleyfi í umboði eiganda. 

Þegar byggingarfulltrúi hefur samþykkt aðalteikningar hússins skila aðrir hönnuðirnir inn burðarþolsteikningum, teikningum af lögnum og rafmagni. Lóðarhafi velur hönnunarstjóra og er það einn af hönnunuðum hússins. Þessum upplýsingum skilar eigandi inn á sérstöku eyðublaði. Skila þarf inn eignaskiptayfirlýsingu þegar byggja á hús sem er fleiri en ein eign og gerð eignaskiptayfirlýsingar annars þeir sem hafa til þess sérstök réttindi. Næst semur lóðarhafi við  byggingarstjóra - það er iðnmeistari eða tæknimaður sem hefur réttindi.

Þessu næst eru iðnmeistarar skráðir á húsið og þeir eru: Húsasmiða-, múarara-, pípulagningar-, rafvirkja-, málara-, blikksmiða-, stálvirkja-, og dúklagningameistari eftir því sem við á. Byggingarstjóri er eins konar verkefnastjóri yfir húsbyggingunni og sér hann meðal annars um samskipti við byggingarfullrúa, pantar og/eða sér um úttektir og þess háttar. Jafnframt er hann í forsvari fyrir þá iðnmeistara sem skráðir eru á húsið.

Tilkynning um byggingarstjóra þarf eigandi að skila til byggingarfulltrúa á sérstöku eyðublaði. Eigandi hússins ber ábyrgð á að öll vinna sé samkvæmt lögum og reglugerð.

Áður er byggingarleyfi er gefið út þurfa allar teikningar að hafa verið samþykktar og skráning meistara á húsið lokið. Þegar hér er komið sögu kallar byggingstjóri eftir útmælingu - það er mælingu á nákvæmri staðsetningu húss á lóðinni. Við útgáfu byggingarleyfis er hægt að hefjast handa við húsbygginguna.

Hönnuðir og byggingarstjórar þurfa að vera tryggðir sérstaklega.  

Eyðublöð þau sem þarf að útfylla í tengslum við byggingarleyfi er að finna hér.

Önnur leyfi sem byggingarfulltrúi veitir eru starfsleyfi og veitingaleyfi. Starfsleyfi  þarf við ákveðinn atvinnurekstur til dæmis heimagistingu, gistiheimili, kaffihús og hárgreiðslustofu.

Leita þarf upplýsinga um  smáhýsi, bílskúrsrétt, svalalokun, frágang lóða á lóðamörkum, girðingar, skjólveggi og trjáfellingar. Veittar eru upplýsingar um skipulagsgjald. 

Fyrirspurnir sendist á netfangið byggingar@kopavogur.is

Rafrænar skráningartöflur skal senda á netfangið skraningartoflur@kopavogur.is

Eignaskiptayfirlýsing þarf að vera til í sérhverju fjöleignarhúsi samkvæmt lögum um fjöleignarhús og jafnframt geta eigendur fjöleignarhúss ákveðið að gera nýja ef þurfa þykir. Gerð eignaskiptayfirlýsinga er í höndum þeirra sem hafa til sérstök réttindi. 


Fasteignaskráning og álagning fasteignagjalda :

Opinber stærðaskráning lóða og húsa er í höndum byggingarfulltrúa. Skráning lóða er birt í samræmi við mæliblöð. Mæliblaðagerð fyrir lóðir í eigu Kópavogsbæjar er í höndum skrifstofu umhverfissviðs.  Skráning húsa byggir í dag einvörðungu á skráningartöflum eru hluti af aðalteikningum. Ef eigandi hefur athugasemdir við stærðaskráningu húss síns getur hann sótt um leiðréttingu á skráningu og sent með skráningartöflu/r og teikningu ef það á við. 

Fasteignaskráning er grunnurinn að útreikningi fasteignamats sem er í höndum Fasteignaskrár sem er hluti af Þjóðskrá Íslands. Fasteignagjöld byggja fyrst og fremst á fasteignamati og eru gjalddagar fasteignagjalda alls 8 talsins. Yfirumsjón með álagningu fasteignagjalda er í höndum byggingarfulltrúa sem og leiðréttingar vegna niðurrifs, afslátta hjá afsláttarþegum o.fl. 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica