Byggingaferli

Byggingarferli

Afgreiðsla byggingarleyfa :

  • Umsókn um byggingarleyfi skal fylgja tveimur eintökum af aðaluppdráttum og tilkynning um hönnunarstjóra þegar sótt er um byggingarleyfi.
  • Útgáfa byggingarleyfis. Til að hægt sé að ganga frá útgáfu byggingarleyfis þarf að vera búið að skila eftirtöldum eyðublöðum útfylltum á skrifstofu byggingarfulltrúans í Kópavogi, Fannborg 6, 2. hæð: Umboð eiganda til byggingarstjóra, Uppáskrift byggingarstjóra / Uppáskrift byggingarstjóra sem fyrirtæki, Tilkynning byggingarstjóra um iðnmeistara, uppáskrift iðnmeistara. Allir aðal- og séruppdrættir þurfa að vera samþykktir og búið að ganga frá greiðslu gjalda.

Að þessu loknu er hægt að panta útmælingu húss í afgreiðslu byggingarfulltrúa að Fannborg 6, 2. hæð, í síma 570 1500. Að útmælingu lokinni er hægt að hefja framkvæmdir.

Byggingarstjóraskipti þarf að tilkynna sérstaklega og skal Umboð eiganda til byggingarstjóra, Uppáskrift byggingarstjóra / Uppáskrift byggingarstjóra sem fyrirtæki ásamt verkstöðu framkvæmda.

Meistaraskipti eru tilkynnt af byggingarstjóra á sérstöku eyðublaði.

 

Úttektir:

Áfangaúttektir:

Á verktíma fara fram lögbundnar áfangaúttekir skv. 48. gr bygingarreglugerða nr. 441/1998 og sér byggingarstjóri um að panta þær. Byggingarstjóra ber að tilkynna byggingarfulltrua þeg hús er fokhelt.

Öryggisúttekt:

Öryggisúttekt skal fara fram áður en hús er tekið í notkun og skal byggingarstjóri óska eftir henni.

 Lokaúttekt:

Lokaúttekt skal fara fram þegar byggingu húss er lokið og skal byggingarstjóri og/eða eigandi óska eftir hanni. Viðstaddir lokaútekt skulu vera byggingarfulltrúi, byggingarsjóri, slökkviliðsstjóri og þeir iðnmeistarar og hönnuðir sem þess óska eða eru boðaðir til þess að kröfu byggingarfulltrúa.

Byggingarfulltrúi boðar til lokaúttektar.