Vinnuferli
Upphaf framkvæmda
Eftir útgáfu byggingarleyfis óskar byggingarstjóri eftir útmælingu hjá byggingarfulltrúa og þá geta framkvæmdir hafist.
Nágrannakynning
Í þegar byggðu hverfi þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir skal sækja um byggingarleyfi til byggingarfulltrúa.
Byggingarfulltrúi hlutast til um að fram fari nárgannakynning hjá skipulagsnefnd.
Nágrannakynning felst í því að skipulagsnefnd kynnir nágrönnum sem taldir eru geta átt hagsmuna að gæta byggingarleyfisumsóknina og gefur þeim kost á að tjá sig um hana innan tilskilins frests sem skal vera a.m.k. fjórar vikur.
Þegar niðurstaða skipulagsnefndar liggur fyrir tekur byggingarfulltrúi byggingarleyfis umsóknina til afgreiðslu.
Hönnunarstjóri
Til samræmingar á hönnunargögnum skal vera hönnunarstjóri á sérshverju mannvirki. Hann skal árita sérupdrætti til staðfestingar á því að samræming hafi farið fram áður en byggingarfulltrúi samþykkir þá.
Byggingarstjóri
Við stjórn framkvæmda hvers mannvirkis skal vera einn byggingarstjóri sem eigandi ræður og er réttindum hans og skyldum lýst nánar í byggingarreglugerð en þau er í aðalatriðum eftirfarandi:
Hann er framkvæmdastjóri byggingarframkvæmda og ræður iðnmeistara.
Hann ber ábyrgð á því að byggt sé í samræmi við samþykkta uppdrætti, lög og reglugerðir.
Hann skal óska úttektar á úttektarskyldum verkþáttum og vera viðstaddur úttektir ásamt viðkomandi iðnmeistara.
Hann tilkynnir byggingarfulltrúa þegar bygging er fokheld.
Hann skal staðfesta við lok framkvæmda að byggt hafi verið í samræmi við samþykkta uppdrætti, lög og reglugerðir.
Iðnmeistarar
Iðnmeistarar bera ábyrgð á einstökum verkþáttum framkvæmdar. Iðnmeistari á viðkomandi verkþætti skal vera viðstaddur úttekt ásamt byggingarstjóra.
