Framkvæmdir

Framkvæmdir

Sviðsstjóri umhverfissviðs er Steingrímur Hauksson.

Á sviðinu eru eftirfarandi deildir:
Framkvæmdadeild, deildarstjóri er Stefán L. Stefánsson.
Eignadeild, deildarstjóri er Gunnar Már Karlsson.
Almenn skrifstofa, skrifstofustjóri er Sigurjón Ingvason.
Garðyrkjustjóri er Friðrik Baldursson.

Undir sviðið heyra jafnframt eftirfarandi stofnanir á vegum sveitarfélagsins:
- Vatnsveita Kópavogs
- Áhaldahús Kópavogs
- Fráveita
- Garðyrkjudeild
- Vinnuskóli
- Skólagarðar
- Eignasjóður fasteigna
- Kópavogshöfn

Helstu verkefni sviðssins:
Framkvæmdir: Allar framkvæmdir á vegum Kópavogsbæjar heyra undir verksvið Framvæmda- og tæknisviðs. Framkvæmdadeild hefur umsjón og ber ábyrgð á verklegum framkvæmdum. Í samræmi við ákvæði laga um opinber innkaup og innkaupareglur Kópavogsbæjar fara allflestar framkvæmdir í útboð. Verkefnum á vegum sviðsins er skipt í eftirfarandi flokka:

Fasteignir - Nýbyggingar:
Framkvæmdir við nýbyggingar eru á ábyrgð framkvæmdadeildar. Framkvæmdadeild annast útboð gerð verksamninga og eftirlit með nýbyggingaframkvæmdum. Ábyrgðarmaður á framkvæmdum við nýframkvæmdir er Stefán L. Stefánsson, deildarstjóri.

Gatnagerð - Nýframkvæmdir:
Framkvæmdir við gatnagerð eru, í allflestum tilfellum, á vegum verktaka sem Kópavogsbær hefur gert verksamning við. Framkvæmdadeild mun halda excel lista yfir helstu nýframkvæmdir sem eru í vinnslu hverju sinni. Sá listi mun vera þjónustuborði aðgengilegur í gegnum One systems. Á umræddum lista verður tilgreindur áætlaður framkvæmdartími og hver sé eftirlitsaðili með framkvæmdinni fyrir hönd Framkvæmdadeildar. Ábyrgðarmaður vegna framkvæmda við gatnagerð er Stefán L. Stefánsson, deildarstjóri Framkvæmdadeildar. Allt viðhald og umhirða gatna er á hendi Áhaldahúss Kópavogs, ábyrgðaraðili er Jóhannes Pétusson.

Veitur:
Til veituframkvæmda heyra framkvæmdir við vatnsveitu, fráveitu, hitaveitu, rafveitu og fjarskiptalagnir.

Framkvæmdir við vatnsveitu eru alfarið á vegum Kópavogsbæjar. Framkvæmdir Vatnsveita Kópavogs (VK) eru almennt unnar samhliða gatnagerð af verktökum undir eftirliti VK. Vatnsöflun og stofnlagnir frá Vatnsendakrika eru á ábyrgð VK. VK sér um allt viðhald á brunnsvæðum, stofnlögnum og dreifilögnum. Heimtaugar VK í ný hús lagðar samhliða lagningu fjarskiptaheimtug og hitaveitu og skulu umsóknir um heimtaug berast til Orkuveitu Reykjavíkur. VK er með skrifstofu í Áhaldahúsi og er Jón Auðunsson vatnsveitustjóri.

Fráveita:
Framkvæmdir við fráveitu eru alfarið á vegum Kópavogsbæjar og eru almennt unnar samhliða gatnagerð undir eftirliti Framkvæmdadeildar. Viðhald fráveitulagna og umhirða er á hendi Áhaldahúss Kópavogs, ábm Jóhannes Pétursson, sími: 570-1660. Bilanavakt tekur á móti tilkynningum um bilanir á gatna- og veitukerfi og liðsinnir bæjarbúum utan venjulegs opnunartíma. Sími bilanavaktar er 892-8215. Tengiliður er Grétar Páll Ólafsson verkstjóri. S. 570-1663 / 840-2617.

Hitaveita:
Framkvæmdir hitaveitu eru unnar á vegum Orkuveitu Reykjavíkur og eru almennt unnar samhliða gatnagerð undir eftirliti OR. Viðhald hitaveitu er á hendi OR. Framkvæmdir við hitaveitu og rafveitu eru á vegum Orkuveitu Reykjavíkur, s: 516-6000.

Rafveita:
Framkvæmdir rafveitu eru unnar á vegum Orkuveitu Reykjavíkur og eru almennt unnar samhliða gatnagerð undir eftirliti OR. Viðhald rafveitu eru á hendi OR.

Gatnalýsing:
Framkvæmdir við gatnalýsingu eru unnar á vegum OR en eru eign Kópavogsbæjar. Viðhald gatnalýsingar er á hendi OR.

Fjarskiptalagnir:
Míla ehf. sér um lagningu fjarskiptalagna, sími: 585-6000. Viðhald fjarskiptalagna er á hendi Mílu ehf.  Einnig er hægt að hafa samband við Gagnaveitu Reykjavíkur vegna fjarskiptalagna (ljósleiðara), 516-7777.

Snjómokstur – hálkueyðing:
Áhaldahús Kópavogs hefur umsjón með snjómokstri, hálkueyðingu og annari hreinsun gatna og stíga. Ábendingar vegna slíkra mála skulu berast Áhaldahúsi í síma 570-1660.

Hreinsun og viðhald:
Áhaldahús hefur umsjón með hreinsun gatna, stíga og opinna svæða. Helstu verkefni áhaldahús við hreinsun og viðhald eru eftirfarandi:

Vélsópun gönguleiða, - viðhald steyptra, hellulagðra og malbikaðra gönguleiða, - frágangur eftir gröft veitustofnana, einstaklinga og fyrirtækja - viðhald götukanta og götupolla - gerð niðurtekta á gangstéttum - uppsetning og viðhald sveifluhliða og handriða - grjóthreinsun og viðhald reiðstíga - viðhald göngubrúa.

Ábendingar vegna slíkra mála skulu berast Áhaldahúsi í síma 570-1660.

*Kópavogsbær annast veghald innan sveitarfélagsins á götum sem ekki eru í einkaeigu. Kópavogsbær annast ekki veghald innan lóða. Í veghaldi felst viðhald og endurbætur á götum. Viðhald á götum eru á hendi Áhaldahúss. Ábyrgðarmaður er Jóhannes Pétursson, sími: 570-1660.

Göngustígar:
Framkvæmdir við göngustíga eru á ábyrgð Framkvæmdadeildar. Ábendingar vegna mála er varða göngustíga skulu berast Áhaldahúsi í síma 570-1660.

Reiðstígar:
Framkvæmdir við reiðstíga eru á ábyrgð Framkvæmdadeildar. Ábendingar vegna mála er varða reiðstíga skulu berast Áhaldahúsi í síma 570-1660.

Göngustígar:
Framkvæmdir við göngustíga eru á ábyrgð Framkvæmdadeildar. Ábendingar vegna mála er varða göngustíga skulu berast Áhaldahúsi í síma 570-1660.

Götulýsing:
Götulýsing heyrir undir Framkvæmdadeild. Ábendingar vegna mála er varða götulýsingu skulu berast Áhaldahúsi í síma 570-1660.

Útboð – innkaup:
Samkvæmt Innkaupareglum Kópavogsbæjar er meginreglan sú að beitt skuli útboðum við innkaup sveitarfélagsins. Framkvæmda- og tæknisvið annast öll útboðsmál er varða framkvæmdir eða fasteignir Kópavogsbæjar, þar með talin forvöl, útboð, fyrirspurnir, verðkannanir, innkaup á vörum, þjónustu og verklegar framkvæmdir. Framkvæmda- og tæknisvið gætir þess að innkaup séu í samræmi við lög og reglur sem um innkaup gilda.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica