Aðalskipulag Kópavogs
Aðalskipulag er skipulagsáætlun fyrir eitt sveitarfélaga og skal taka til alls lands inna marka sveitarfélagsins. Í aðalskipulagi er sett fram stefna sveitarstjórnar um þróun sveitarfélagsins varðandi landnotkun, byggðarþróun, byggðarmynstur, samgöngur, þjónustukerfi og umhverfismál.
Þar er lagður einnig lagður grundvöllur fyrir gerð deiliskipulags.
Sveitarstjórn skal auglýsa tillögu að aðalskipulagi með áberandi hætti og í Lögbirtingarblaðinu þar sem öllum er gefinn kostur á að gera athugasemdir. Frestur er sex vikur frá birtingu auglýsingar. Þegar sveitarstjórn hefur samþykkt tillögu að aðalskipulagi er tillagan send Skipulagsstofnunar ásamt athugasemdum ef þær hafa borist og tillagan auglýst í B- deild Stjórnartíðinda komi ekki athugasemdir frá Skipulagsstofnun.
Breytingar á aðalskipulagi sem eru óverulegar að mati sveitarstjórnar.
Þá er send rökstudd tillaga um breytinguna til Skipulagsstofnunar og niðurstaða sveitarstjórnar auglýst. Fallist Skipulagsstofnun á tillögu sveitarstjórnar skal hún staðfesta hana innan fjögurra vikna frá því að tillaga barst henni og auglýsa hana í B- deild Stjórnartíðinda. Fallist Skipulagsstofnun ekki á að um óverulega breytingu sé að ræða skal hún tilkynna sveitarstjórn um það og fer þá um málsmeðferð eins og um gerð aðalskipulags sé að ræða.
Aðalskipulag Kópavogs 2000- 2012 var samþykkt árið 2002 og með því var lagður grunnur að skipulagsáætlunum Kópavogsbæjar til næstu tólf ára. Í dag er unnið að endurskoðun aðalskipulags Kópavogs en gert er ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki á árinu 2012.
Uppdrættir og greinargerðir er hægt að nálgast í afgreiðslu skipulags- og byggingadeildar umhverfissviðs í Fannborg 6, 2. hæð. Einnig er hægt að smella á tenglana hér fyrir neðan.
Aðalskipulag - þéttbýlisuppdráttur
Aðalskipulag - Sveitarfélagsuppdráttur
Aðalskipulag - Greinargerð
Staðfestar breytingar á Aðalskipulagi Kópavogs 2000-2012
