Endurskoðun aðalskipulags og Staðardagskrár 21

Endurskoðun aðalskipulags og Staðardagskrár 21

                                Vertu með í stefnumótun um framtíð Kópavogs!

Adalskipulag-Kopavogs-2000-2012(minna2)


Hafin er endurskoðun Aðalskipulags Kópavogs 2000-2012 og Staðardagskrár 21. Aðalskipulagið var samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs 12. mars 2002 og staðfest af umhverfisráðherra 23. apríl 2002. Endurskoðun aðalskipulagsins er sú fjórða í röðinni. Fyrst var samþykkt aðalskipulag fyrir Kópavog 1985 en fyrsta aðalskipulagið sem var staðfest samkvæmt lögum og nær til allrar lögsögu bæjarins er frá 1990, síðan 1994 og 2002.

 

Verkefnið
Í aðalskipulagi er sett fram stefna sveitarstjórnar um þróun sveitarfélagsins varðandi landnotkun, byggðaþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál. Í aðalskipulagi er lagður grundvöllur fyrir gerð deiliskipulags varðandi landnotkun, takmarkanir á landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi og byggðamynstur, þ.m.t. þéttleika byggðar. Einnig er unnið umhverfismat áætlana fyrir aðalskipulagið þar sem bornir eru saman mismunandi kostir. Í aðalskipulagi skal marka stefnu til a.m.k. tólf ára en jafnframt gera grein fyrir samhengi skipulagsáætlunarinnar og einstakra þátta hennar við langtímaþróun sveitarfélagsins.

Samráð
Til að auðvelda þátttöku íbúa og hagsmunaaðila í samráðsferlinu hefur Kópavogsbær opnað skipulagsgátt á vef sínum. Þar gefst íbúum sem og öðrum sem hafa áhuga á byggðaþróun í lögsögu bæjarins tækifæri til að senda inn hugmyndir í skipulagsvinnuna á adalskipulag(hja)kopavogur.is

Íbúafundir verða jafnframt haldnir í vor og haust. M.a. verða samráðsfundir í hverfum bæjarins,í Kársnesi, Digranesi, Smárum, Lindum,Sölum og Vatnsenda (Hvörf/Þing og Kórar). Með þessum fundum er leitast við að fá fólk á öllum aldri til samráðs með þeim starfsmönnum bæjarins sem vinna að endurskoðun aðalskipulagsins og Staðardagskrár 21.

Ýmsar spurningar sem koma upp við endurskoðun aðalskipulagsins og Staðardagskrár 21:
Hvað er það sem brennur á íbúunum í hverfinu?
Hver er staðan,hvað má betur fara?

Hvernig sjá íbúar og hagsmunaaðilar bæinn okkar þróast næstu árin, byggðina, yfirbragð byggðarinnar, atvinnulífið í bænum, samgöngurnar, þjónustuna, Útivistarsvæðin, og verndun sögu,- og náttúruminja, menningarmálin, ferðamálin og ekki hvað síst í umhverfis- og skipulagsmálin svo eitthvað sé upptalið.

Skipulagsgáttin
Vonandi verður gáttin eins konar „vinnustofa“ bæjarbúa og þeirra sem að verkefninu starfa. Þar verði endurskoðun aðalskipulagsins krufin til mergjar. Því er það mikilvægt að með  skipulagsgáttinni megi virkja þátttöku íbúa til ábyrgðar um þróun byggðar í Kópavogi og samfélagsins sem í bænum býr. Takmarkið er að endurskoðað aðalskipulag bæjarins verði tilbúið á árinu 2012.  Í gáttinni verða ýmsar upplýsingar og bætast við gögn eftir því sem verkefninu miðar áfram.  Þá verður þar hægt að senda inn hugmyndir og ábendingar.

P1080545

 

 

 

 

 

 

 

Ýmis gögn er varða endurskoðun aðalskipulags:

Kynning á verkefnislýsingu aðalskipulags Kópavogs
Þann 5. maí var haldinn kynning í Hörðuvallaskóla fyrir íbúa Kópavogs um endurskoðun aðalskipulagsins og Staðardagskrár 21.
Á fundinum voru forsendur aðalskipulagsvinnunnar kynntar, fyrirliggjandi stefna í gildandi aðalskipulagi og nýjar áherslur. Möguleg breytingarsvæði voru tilgreind og helstu efnisþættir nýs aðalskipulags. Einnig var upplýst hvernig samráði við íbúa sem og aðra lögboðna aðila verður háttað og helstu áfangar í fyrirhuguðu vinnuferli raktir.

Kynning á verkefnislýsingu

Matslýsing 15. apríl 2011   
Verkefnislýsing 15. apríl 2011

Aðalskipulag Kópavogs 2000- 2012
Staðardagskrá 21

Samradsfundur_i_smaraskola
Mynd tekin á samráðsfundi með íbúum í Smáraskóla
 
Samráðsfundur með fulltrúum íbúasamtaka í Lindaskóla 27. október 2011.
Okkar hugmyndir - okkar niðurstöður
 
Samráðsfundur með íbúum á Kársnesi í Kársnesskóla 14. september 2011.
Okkar hugmyndir - okkar niðurstöður

 
Samráðsfundur með íbúum í Digranesi í Kópavogsskóla 8. september 2011.
Okkar hugmyndir - okkar niðurstöður

 
Samráðsfundur með íbúum í Smárahverfi í Smáraskóla 1. september 2011. 
 
Samráðsfundur með íbúum í Hvörfum, Þingum og Kórum í Vatnsendaskóla 19. maí 2011.
Okkar hugmyndir - okkar niðurstöður
 
Samráðsfundur með íbúum í Lindum og Sölum í Salaskóla 26. maí 2011.
Okkar hugmyndir - okkar niðurstöður
 
Niðurstöður íbúafunda sem haldnir voru haustið 2009.
Fimm íbúafundir með íbúum Kópavogs hafa verið haldnir þar sem óskað var eftir hugmyndum og ábendingum fyrir endurskoðun aðalskipulags og Staðardagskrár 21. Óskað var eftir því að íbúar íhuguðu hvernig þeir vildu sjá Kópavog til langrar framtíðar.

Niðurstöður kosninga á íbúafundum sem haldnir voru haustið 2009.
Haldin var kosning þar sem íbúum gafst tækifæri til að skrifa niður uppáhaldsstaðina í Kópavoginum og hvað þeim fannst helst mega bæta.
 
 
Íbúaþing í Kópavogi árið 2005
Laugardaginn 19. nóvember 2005 var haldið íbúaþing í Lindaskóla í Kópavogi undir yfirskriftinni „Kópavogur framtíðarinnar”. Um 140 þátttakendur mættu og unnu bæði í umræðu- og skipulagshópum.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica