Hugmyndabanki skipulagsmála
Stefnumótun í skipulagsmálum á fyrst og fremst að taka mið af hagsmunum bæjarbúa.
Þar vegur þyngst aukið samstarf og samráð við íbúa.
Helstu áherslur:
• Aukið samráð við bæjarbúa við mótun nýrra svæða og vegna skipulagsbreytinga.
• Aukið samstarf um skipulag höfuðborgarsvæðisins.
• Endurskoða skipulag á Kársnesi, í Smára, Glaðheimum og nærliggjandi svæðum.
• Hafist verði handa við endurskipulagningu Hamraborgarsvæðisins.
• Lóðum verði úthlutað á réttlátan og gagnsæjan hátt og úthlutunarreglur endurskoðaðar.
• Farið verði í hugmyndavinnu um nýtingu Kópavogstúns.
• Bæjaryfirvöld stuðli að því að húseigendur og fyrirtækjaeigendur fegri umhverfi sitt.
