Deiliskipulag er skipulagsáætlun fyrir afmarkað svæði eða reit innan sveitarfélags Í deiliskipulagi eru teknar ákvarðanir um lóðir, lóðanotkun, byggingarreiti, byggðarmynstur, nýtingarhlutfall, útlit mannvirkja og form eftir því sem við á og aðrar skipulagsforsendur sem þurfa að liggja fyrir vegna byggingar- og framkvæmdaleyfa. Deiliskipulag skal gera fyrir einstök svæði eða reiti og skal jafnan miðað við að það taki til svæða sem mynda heildstæða einingu. Við gerð deiliskipulags skal byggt á stefnu aðalskipulags og hún útfærð fyrir viðkomandi svæði eða reiti. .
Samþykkt deiliskipulag fyrir austurbæ Kópavogs og einstaka breytingar á því.