Dýrahald í Kópavogi
Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis sér um skráningu, framkvæmd og eftirlit með hundahaldi í Kópavogi og getur leitað til lögregluyfirvalda ef þörf þykir. Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis fer með eftirlit með framkvæmd samþykktar um kattahald í Kópavogi.
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Heilbrigðiseftirlitsins www.heilbrigdiseftirlit.is og í síma 550- 5400.
Á fundi bæjarráðs 21. október 2010 voru reglur um kattahald í Kópavogi samþykktar og má sjá reglurnar hér.
Samþykkt um hundahald á Álftanesi, í Garðabæ, Hafnarfirði og Kópavogi var samþykkt með auglýsingu í B- deild Stjórnartíðinda nr. 154/2000.
