Skólagarðar
  • Skolagardar

Skólagarðar

Skólagarðar hafa verið reknir á vegum Kópavogsbæjar síðastliðin fimmtíu ár eða svo.  Þeir eru ætlaðir börnum á aldrinum 6-13 ára og hafa um 300 börn sótt skólagarðana á hverju sumri. Þar fá þau kartöfluútsæði, plöntur og fræ ásamt leiðsögn við ræktun algengustu matjurta.

Leiðbeinendur og aðstoðarmenn starfa með börnunum, en auk ræktunarinnar er farið í leiki, skoðunarferðir, haldið íþróttamót, grillað og gert fleira skemmtilegt.

Skólagarðarnir eru þó hvorki leikjanámskeið né gæsluvellir fyrir börn.

Skólagarðar eru í Fossvogsdal við Víðigrund, í Kópavogsdal við endurvinnslustöð Sorpu og við Baugakór nærri Hörðuvallaskóla.

Gjald fyrir þátttöku í skólagörðum sumarið 2012 er 4.000 kr.

Opnað verður fyrir umsóknir um skólagarða í lok apríl.

Skólagarðar.