Stefnumótun og þróun
Árið 2003 skipaði Kópavogsbær sér í hóp þeirra sveitarfélaga á Íslandi sem mótað hafa skýra stefnu og sýn um sjálfbæra þróun. Síðan 2003 hefur verið unnið að þeim markmiðum sem þá voru sett og hefur flestum þeirra verið náð. Árið 2009 hófst endurskoðun á Staðardagskrá 21 enda kominn tími til að vinna ný markmið og endurskoða eldri. Samþykkt hefur verið að sameina áætlanirnar tvær í eina þ.e. Staðardagskrá 21 og aðalskipulag Kópavogs.
Grænt bókhald Kópavogsbæjar er til frá árinu 2007 og er í sífelldri mótun og þróun um það hvernig best er að sýna grænar lykiltölur í starfsemi bæjarins.
Vorið 2010 var samþykkt á fundi leikskólastjóra í Kópavogi að endurskoða umhverfisstefnu leikskóla. Starfshópur var skipaður um verkefnið og skilaði af sér nýrri umhverfisstefnu leikskóla í ágúst 2011. Hana má sjá hér.

