Ólafsvíkuryfirlýsingin

Ólafsvíkuryfirlýsingin

Ólafsvíkuryfirlýsingin er yfirlýsing um framlag íslenskra sveitarfélaga til sjálfbærrar þróunar. Með því að gerast aðili að þessari yfirlýsingu samþykkir Kópavogsbær að leggja sitt af mörkum til sjálfbærrar þróunar. Markmið sveitarfélaganna sem samþykkja Ólafsvíkuryfirlýsinguna  eru:

  • 1.     Sjálfbær þróun sem tryggir lífsgrundvöll og lífsgæði jafnt fyrir núverandi og komandi kynslóðir
  • 2.     Að athafnir í heimabyggð okkar séu innan þeirra marka sem náttúran þolir, jafnt hnattrænt
            sem heimafyrir.


Sambærilegar yfirlýsingar hafa verið gerðar víða um heim, til að mynda Friðriksstaðaryfirlýsingin sem samþykkt var á landsráðsstefnu norskra sveitarfélaga árið 1998 og Álaborgarsáttmálinn sem er yfirlýsing evrópskra borga um stefnu að sjálfbærri þróun.

Þann 28. júlí 2009 samþykkti bæjarstjórn Kópavogs Ólafsvíkuryfirlýsinguna.

Með því að samþykkja Ólafsvíkuryfirlýsinguna er sveitarfélagið að skuldbinda sig til að leggja sitt af mörkum til sjálfbærrar þróunar. Það gerir bærinn til að mynda með því að virkja íbúa, félagasamtök og fyrirtæki til þátttöku í verkefnum sem tengjast Staðardagskrá 21 svo og með því að hafa sjálfbæra þróun að leiðarljósi við öll málefni sveitarfélagsins.

Ólafsvíkuryfirlýsingin

 Ólafsvíkuryfirlýsingin undirrituð

 

 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica