Umhverfisviðurkenningar
  • Safnhus_bak_s4

Viðurkenning umhverfisráðs

Frá 1964 hefur Kópavogsbær í samvinnu við félög í bænum veitt um 160 viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi, fallegustu garða eða lóðir bæjarins. Á árinu 1995 varð breyting á og núverandi fyrirkomulag tekið upp. Ár hvert veitir umhverfis- og samgöngunefnd einstaklingum og/eða fyrirtækjum viðurkenningar í eftirtöldum flokkum: endurgerð húsnæðis; hönnun; frágangur húss og lóðar á nýbyggingarsvæðum; framlag til ræktunarmála og framlag til umhverfismála. Bæjarstjórn Kópavogs velur hinsvegar götu ársins.

Gerðar voru lítilsháttar breytingar á fyrirkomulagi viðurkenninganna árið 2010 en ákveðið var að veita ekki viðurkenningu fyrir hönnun heldur veita viðurkenningar til íbúa og fyrirtækja sem einbeita sér að því að daglegar athafnir þeirra snúist um að bæta umhverfið sitt og annarra á hverjum degi.

Veittar voru viðurkenningar árið 2010 í tveimur nýjum flokkum: Umhirða húss og lóðar til fyrirmyndar og veitt var heiðursviðurkenning bæjarstjórnar og umhverfis- og samgöngunefndar Kópavogs fyrir framlag til umhverfis og samfélags.

Viðurkenningar umhverfis- og samgöngunefndar og bæjarstjórnar 1995-2011.

Umhverfi og samfélag - heiðursviðurkenning:
2010:
Ævar Jóhannesson fékk heiðursviðurkenningu bæjarstjórnar og umhverfisráðs Kópavogs fyrir framlag sitt til bætts samfélags.

Umhverfi og samfélag:
2011: Einar Clausen, Hreint ehf og Svansprent.

Umhirða húss og lóðar til fyrirmyndar:
2011:
Hófgerði 14
2010: Kópavogsbraut 4

Endurgerð húsnæðis:
1995:
Kópavogsbraut 80
1996: Melgerði 9
1997: Hlíðarvegur 1
1998: Sunnubraut 42
1999: Sunnubraut 22
2000: Elliðahvammur, - endurgerð burstabæjar.
2001: Álfhólsvegur 51
2002: Grundarhvarf 12
2003: Kársnesbraut 55
2004: Engin viðurkenning veitt það árið.
2005: Reynihvammur 23
2006: Digranesheiði 3
2007: Bjarnhólastígur 3
2008: Fífuhvammur 39
2009- 2010: Engin viðurkenning veitt það árið.

Hönnun:
1995:
Benjamín Magnússon, arkitekt, fyrir atvinnuhúsnæðin Listasafns Kópavogs og Digraneskirkju
1996: Hildigunnur Haraldsdóttir, arkitekt, fyrir einbýlishúsið að Hólahjalla 12
1997: Eyjólfur E. Bragason, arkitekt, fyrir einbýlishúsið að Funalind 13
1998: Oddur Víðisson, arkitekt, fyrir einbýlishúsið að Bergsmára 7
1999: ALARK, arkitektar, fyrir atvinnuhúsnæði Tónlistarhússins
2000: Albína Thordarson, arkitekt, fyrir einbýlishúsið Mánalind 2 og Guðmundur Gunnlaugsson, arkitekt fyrir atvinnuhúsnæðið að Hlíðarsmára 11
2001: Kanon arkitektar vegna einbýlishússins Dimmuhvarfs 2
2002: BDP og Arkitektar Skógarhlíð ehf. vegna atvinnuhúsnæðisins Smáralind
2003: Kristinn Ragnarsson, arkitekt, og samstarfsmenn hans, arkitektarnir Carlos A. D. Nunez Gonxález, Rafael Cao Romero Millán og Jorge González Eríquez fyrir hönnun fjölbýlishúsanna Hlynsalir 1-3 og 5-7. 
Sveinn Ívarsson, arkitekt fyrir hönnun einbýlishússins að Logasölum 7
2004: Björgvin Snæbjörnsson fyrir hönnun einbýlishússins að Laxalind 6.
2005: Hönnun einbýlis: Dimmuhvarf 27, hönnun fjölbýlis: Álfkonuhvarf 59-61, hönnun atvinnuhúsnæðis: Hlíðasmári 1-3, hönnun lóðar: Fífusalir, Salavegi 4
2006: Sveinn Ívarsson, arkitekt, fyrir hönnun leikskólanna Hvarfs og Kórs. 
ASK arkitektar og Íslenskir Aðalverktakar fyrir hönnun klasahúsa að Perlukór 3. KR arkitektar og Björgvin Snæbjörnsson fyrir hönnun einbýlishúss að Fákahvarfi 12
2007: Arkþing ehf. fyrir atvinnuhúsnæði að Smiðjuvegi 76. 
Björn Ólafs, arkitekt, fyrir fjölbýlishús að Hörðukór 1. 
Björgvin Snæbjörnsson fyrir einbýlishús að Kleifakór 20
2008: Baldur Ó. Svavarsson og Jón. Þ. Þorvaldsson, arkitektar Úti-Inni, fyrir hönnun fjölbýlishúss að Tröllakór 12 - 16. 
Jón Hrafn Hlöðversson, byggingafræðingur, Sigurður Hafsteinsson byggingatæknifræðingur og Vífill Björnsson, byggingafræðingur hjá teiknistofunni Vektor, fyrir hönnun íþróttamannvirkis, stúkan við Kópavogsvöll.
2009: Kári Eiríksson, arkitekt, fyrir einbýlishús að Kópavogsbakka 1. Gunnar Páll Kristinsson og Guðmundur Gunnlaugsson, arkitektar, fyrir fjölbýlishúsin að Lundi 1 og 3. GASSA arkitekter, fyrir atvinnuhúsnæði eða safnaðarheimili Kópavogskirkju.

Frágangur húss og lóðar á nýbyggingarsvæðum:
1995:
Lindasmári 44-54
1996: Eyktarsmári 1
1997: Lækjarsmári 66-76
1998: Fjallalind 25
1999: Iðalind 3
2000: Kraftvélar við Dalveg og Mánalind 2
2001: Askalind 1(Habitathúsið) og Jórsalir 4
2002: Jórsalir 6 og 8 og Ársalir 1-3
2003: BYKO Breiddinni og Logasalir 7
2004: Lómasalir 2-4
2005: Álfkonuhvarf 59- 61 og Álfahvarf 1
2006: Baugakór 4 og Asparhvarf 16
2007: Íslenskir aðalverktakar hf. fyrir Ásakór 2 - 4
2008: Hólmaþing 10
2009: Sóknarnefnd Kársnessóknar fyrir Safnaðarheimili Kópavogskirkju.
2010: K.S. Verktakar fyrir Kópavogstún 6-8

Framlag til ræktunarmála:
1995:
Guðmundur Jónsson, BYKO, vegna ræktunar í Vatnsendahlíð
1996: Hermann C. Lundholm, garðyrkjumaður, vegna skrúðgarðs við Hlíðarveg
1997: Þorsteinn Sigmundsson, Elliðahvammi, fyrir trjárækt og uppgræðslu í Vatnsendalandi
1998: Ágústa Björnsdóttir, Hlíðarvegi 23
1999: Skógræktarfélag Kópavogs og Vinnuskóli Kópavogs, fyrir trjárækt í bæjarlandinu
2000: Friðrik Baldursson, garðyrkjustjóri Kópavogs
2001: Leó Guðlaugsson, Víghólastíg 20
2002: Guðný Sigurgísladóttir, Fífuhvammi 19
2003: Engin viðurkenning veitt það árið
2004: Hrafnhildur Vernharðsdóttir og Jón Viðar Magnússon, Lindarhvammi
2005: Laxatangi við Elliðavatn 
2006-2010: Engin viðurkenning veitt þau ár.

Framlag til umhverfismála:
1995:
Hauður Kristinsdóttir, myndmenntakennari, v/ merkinga á miðbæjarsvæði
1996: Furuhjalli 16, notkun á torfi
1997: Siglingamálastofnun Íslands fyrir endurgerð á nausti í Fossvogi
1998: Sjálfsbjörg við Elliðavatn
1999: (engin viðurkenning)
2000: Hleðsla á Víghól. Viðurkenning fyrir gamalt og gott handbragð. Björn og Guðni s.f.
2001: Umhverfisstefna í leikskólum bæjarins
2002: Sóknarnefnd Hjallakirkju
2003: Einar Þorgeirsson, skrúðgarðyrkjumeistari
2004: Heilsuleikskólinn Urðarhóll. Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð
2005: Málning hf. og Skógræktarfélag Kópavogs vegna Guðmundarlundar
2006: Teiknistofan Landmótun og Aubert Högnason vegna hönnunar og framkvæmda við Tjörnina í Kópavogsdal
2007: Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar. Lindarskóli, Salaskóli og Snælandsskóli
2008: JB Byggingafélag fyrir hönnun og framkvæmdir opins svæðis við Grandahvarf
2009: Leikskólarnir Álfaheiði, Fífuhvammur og Furugrund fyrir stefnu sína í umhverfismálum.
2010: Fyrirtækið Toyota fyrir framúrskarandi vinnu að umhverfismálum.

Gata ársins: (viðurkenning bæjarstjórnar)
1995:
Brekkutún
1996: Birkigrund 49-71
1997: Hlíðarvegur
1998: Skjólbraut
1999: Víghólastígur
2000: Nýbýlavegur (vestan Þverbrekku)
2001: Mánabraut
2002: Fífuhvammsvegur
2003: Lækjasmári 2-8
2004: Sæbólsbraut 1-31
2005: Fjallalind 1- 47.
2006: Bakkahjalli
2007: Vogatunga 1 - 49 (oddatölur)
2008: Ísalind
2009: Brekkusmári
2010: Hlynsalir

 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica