Fornleifaskrá
Hlutverk fornleifaskrár Kópavogs er að styðja skipulagsnefnd, umhverfis- og samgöngunefnd og menningar- og þróunarráð við að standa vörð um fornleifar í bæjarlandinu og marka stefnu í skipulagsmálum og minjavernd með hliðsjón af þeim. Á árunum 1999- 2000 var unnið að fornleifaskráningu af heimalandinu (landið vestan Elliðavatns). Þar kemur fram að í þéttbýli Kópavogs og næsta nágrenni eru 53 staðir skráðir sem fornleifar og geyma þeir 75 stakar fornleifar.
Hér fyrir neðan má sjá skýrslurnar tvær sem unnar voru.
Fornleifaskrá Kópavogs
Fornleifaskrá Kópavogs- lýsing á stöðum
