Bílastæðasjóður Kópavogsbæjar

Hlutverk Bílastæðasjóðs er að auka þjónustu við íbúa til að komast leiðar sinnar á sem öruggastan og besta máta, sama hver ferðamátinn er hverju sinni.

 Athugasemdir vegna álagningar

Bílastæðasjóður er eign Kópavogsbæjar og er rekinn af bílastæðanefnd. Stöðuverðir sjá um eftirlit og leggja á  stöðubrotsgjöld. 

Verkefni Bílastæðasjóðs er að sjá til þess að allir íbúar Kópavogs komist örugglega ferðar sinnar innan Kópavogs, hvernig ferðamáta sem þeir kjósa sér, án þess að verða fyrir truflun frá ökutækjum sem er ekki lagt í samræmi við umferðarlög.

  • Stöðvunarbrotagjald

    Stöðvunarbrotagjöld eru sameiginlegt heiti yfir stöðubrotsgjöld og aukastöðugjöld. í upphafi verður eingöngu lagt á stöðubrotsgjald í Kópavogi.

    Stöðubrotsgjald

    Stöðubrotsgjald er lagt á bifreið þegar stöðvað eða lagt er undir bannmerki, stöðvað á gangstétt, of nærri gangbraut eða við aðrar nánar tilteknar aðstæður sbr. 108. grein umferðarregla nr. 77/2019.

    Stöðubrotsgjald - bílastæði hreyfihamlaðra

    Gjaldið fyrir að leggja í bílastæði hreyfihamlaðra án þess að gildu stæðiskorti fyrir hreyfihamlaða sé framvísað

    Aukastöðugjald

    Þetta gjald (sem í daglegu tali er kallað stöðumælasekt) verður í upphafi ekki innheimt í Kópavogi.

    Rökstuðningur

    Aðili máls getur óskað eftir rökstuðningi fyrir ákvörðun álagningar. Beiðni um rökstuðning fyrir ákvörðun skal bera fram innan 14 daga frá því að álagning var lögð á ökutæki og verður henni svarað innan 14 daga frá því að hún barst. 

    Endurupptaka

    Heimilt er að óska eftir endurupptöku ákvörðunar um álagningu stöðvunarbrotagjalds innan 28 daga frá dagsetningu álagningar. Almennur afgreiðslutími er ein til tvær vikur.

  • Brotalýsingar

    11 Bannað að stöðva (bannmerki 24)

    12 Bannað að leggja (bannmerki 21)

    13 Bannað að leggja á svæði.

    21 Stöðvað/lagt á gangbraut eða innan 5 metra frá henni.

    22 Stöðvað/lagt á vegamótum eða innan 5 metra frá næstu brún akbrautar á þvervegi.

    23 Stöðvað/lagt á/við biðstöð hópbifreiða innan 15 metra frá merki.

    24 Stöðvað/lagt á gangstétt, göngustíg, umferðareyju eða aðra svipaða staði.

    25 Stöðvað/lagt í merktu stæði fyrir leigubifreið, vörubifreið eða hópbifreið.

    26 Stöðvað/lagt á móti akstursstefnu.

    27 Stöðvað/lagt í merktu stæði ætluðu fólksbifreiðum.

    28 Stöðvað/lagt í merkt stæði ætluðu lögreglu eða sjúkrabifreið.

    29 Lagt við vatnshana slökkviliðs.

    30 Lagt í vistgötu.

    31 Brot sbr. d- og e- lið 1. mgr. 109. gr.

    32 Brot á reglum um notkun stöðureita (aukastöðugjald).

    33 Stöðvað/lagt í merktu stæði fyrir ökutæki fatlaðs fólks.

  • Lög og reglugerðir

    Umferðarlög, nr. 77/2019

    Reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra, nr. 289/1995

    Reglugerð um útgáfu og notkun stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða, nr. 1130/2016 

    Stjórnsýslulög, nr. 37/1993

    Lög um meðferð einkamála, nr. 91/1991

    Auglýsing um gjaldskrá vegna stöðubrota í Kópavogsbæ

    Reglugerðir með breytingum er að finna á vef Samgöngustofu.

  • Að færa álagningu milli aðila

    Álagning stöðvunarbrotagjalds miðast við skráðan eiganda/umráðamann skv. ökutækjaskrá og er Bílastæðasjóði óheimilt að færa kröfu á milli aðila. Aðrir en skráðir eigendur/umráðamenn geta greitt álagningu í bönkum, sparisjóðum og heimabanka.

    Álagningu er hægt að greiða í gegnum heimabanka undir ógreiddum reikningum. 

  • Greiðsluleiðbeiningar

    Þegar gjald er lagt á ökutæki er það lesið nær samstundis inn í bankakerfið og stofnast þar á viðkomandi eiganda/umráðamann og er þá tilbúið til greiðslu. 

    Hægt er að greiða stöðvunarbrotagjöld í öllum bönkum og sparisjóðum hér á landi. Jafnframt er hægt að greiða gjöldin í netbanka og er þá gjaldið undir liðnum "ógreiddar kröfur" í netbanka eiganda/umráðamanns. Sé annar en eigandi eða umráðamaður að greiða gjaldið þarf viðkomandi að slá kröfunúmer seðilsins inn, en það er gert með því að velja "Greiðslur" og síðan "Greiðsluseðill". Vinsamlegast athugið að það er ekki hægt að millifæra inn á reikning Bílastæðasjóðs heldur þarf að greiða greiðsluseðilinn.

    Að gefnu tilefni er bent á að "Kennitala greiðanda" í netbönkum vísar til kennitölu þess sem er skráður fyrir gjaldinu, í þessu tilviki er það eigandi eða umráðamaður ökutækis, en ekki þess sem er að greiða gjaldið.

  • Innheimtuferli

    Verði álagt gjald ekki greitt innan 14 daga frá álagningu hækkar það um 50% og gjald enn ógreitt að liðnum 28 dögum frá álagningu hækkar það um 100% miðað við upphaflega fjárhæð sbr. gjaldskrá vegna stöðvunarbrota í Kópavogsbæ. Sé álagning ógreidd að þessum 28 dögum liðnum fer hún til innheimtu.

    Athygli er vakin á því að álögðu stöðvunarbrotagjaldi fylgir lögveð í ökutæki og heimilt er að krefjast nauðungarsölu  án  undangengis fjárnáms sbr. 2. - 5. mgr. 110. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

  • Gjaldskrá

    Prenta gjaldskrá

    Gjaldskrá Bílastæðasjóð gildir frá 1. nóvember 2018.

    Brot
    Upphæð
    Stöðubrotsgjald - stöðvað undir bannmerki, stöðvað á gangstétt, of nærri gangbraut eða við aðrar nánari tilteknar aðstæður sbr. 110. gr. umferðarlaga nr. 77/2019
    10.000 krónur
    -14 dögum eftir álagningu
    15.000 krónur
    -28 dögum eftir álagningu
    20.000 krónur
    Lagt í bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða
    20.000 krónur
    -14 dögum eftir álagningu
    30.000 krónur
    - 28 dögum eftir álagningu
    40.000 krónur
Síðast uppfært 28. október 2021