Digranesvegur 72A

Á fundi skipulagsráðs 5. desember 2022 var lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 11. nóvember 2022, þar sem umsókn Huldu Jónsdóttur arkitekts um byggingarleyfi f.h. lóðarhafa er vísað til skipulagsráðs. Í breytingunni felst að kjallari verði stækkaður um 43 m². Núverandi byggingarmagn á lóðinni er 179,4 m² og verður 222,4 m² eftir breytingu. Nýtingarhlutfall eykst úr 0,29 í 0,36.
Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 28. september 2022.

Skipulagsráð samþykkti með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Digranesvegar 70 og 72, Hrauntungu 113. 

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 12:00  föstudaginn 13. janúar 2023.

Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi.

Digranesvegur 72A
Tímabil
12. desember til 13. janúar 2023.
Kynningargögn
Kynningaruppdættir.