Fagrihjalli 11

Í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breyttu á deiliskipulagi  í Kópavogi.

Á fundi skipulagsráðs 29. mars 2021 var lagt fram erindi Jakobs Líndal arkitekts dags. 22. febrúar 2021 f.h. lóðarhafa Fagrahjalla 11 þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi. Á lóðinni stendur 261,9 m2 steinsteypt einbýlishús ásamt 67,9 m2 bílskúr, byggt 1991. Í erindinu er óskað eftir að stækka byggingarreit kjallarans um 3,05 m. til suðurs, samtals um 36 m2. Eftir breytingu verður stærð hússins 361,1 m2 og nýtingarhlutfallið eykst úr 0,47 í 0,52. Uppdráttur í mkv. 1:250, 1:500 og 1:1000 dags. 22. febrúar 2021.   

Með vísan til 2. mgr. 43. gr. laga nr. 123/2010 er eftirtöldum lóðarhöfum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Fagrahjalla 9, 13, Furuhjalla 10 og 12.

Kynning hefst þann 29. apríl 2021 og skal ábendingum og athugasemdum við framlagða tillögu skila skriflega til Skipulagsdeildar Kópavogs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða með tölvupósti á skipulag@kopavogur.is fyrir kl. 15:00 þriðjudaginn 1. júní 2021.

Fagrihjalli 11
Tímabil
29. apríl 2021 - 1. júní 2021