Hafnarbraut 10

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 08. mars 2022 að auglýsa í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Hafnarbraut 10.

Í breytingunni felst að íbúðum fjölgi um 8, verði 48 í stað 40 í sama rými og fyrir er og að bílgeymsla verði stækkuð neðanjarðar og fjöldi bílastæða á lóð verði í samræmi við íbúðarstærðir.

Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 9. september 2022, uppfært 13. janúar 2023. Nánar um tillöguna er vísað til kynningargagna.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 16 :00 fimmtudaginn 2. mars 2023.

Hafnarbraut 10
Tímabil
14. janúar til 2. mars 2023.