Kópavogsgerði 5-7.

Á fundi skipulagsráðs 16. maí sl. var lagt fram erindi KRark arkitekt ehf. fyrir hönd lóðarhafa dags. 24. mars 2022 þar sem sótt er um breytingu á deiliskipulagi á lóðinni. Í breytingunni felst að heimilt verði að byggja á vesturhlið 42,6 m² sólskála á þaksvalir við íbúð á efstu hæð. Samþykki lóðarhafa Kópavogsgerði 5-7 liggur fyrir.
Uppdráttur dags. 25. mars 2022 í mkv. 1:2000 og 1:500.
Skipulagsráð samþykkti með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Kópavogsgerðis 1-3, 5-7, 8 og 10.

Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:2000 ásamt greinargerð dags. 25. mars 2022.

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 15:00 mánudaginn 8. ágúst 2022.

Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi.

Kópavogsgerði 5-7.
Tímabil
6. júlí til 8. ágúst 2022.