Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 6. september 2021 var lagt fram erindi Einar Ingimarssonar arkitekts fyrir hönd lóðarhafa Laufbrekku 28, dags. 25. júní 2021. Sótt er um heimild að byggja útitröppur og tröppupall úr timbri að efri hæð íbúðar og setja þar inngangshurð í stað glugga.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Laufbrekku 20, 22, 23, 24, 25, 26, 27, 30 og Auðbrekku 38.
Kynning hófst 15. september 2021 og skal ábendingum og athugasemdum við framlagða tillögu skila skriflega til skipulagsdeildar Kópavogsbæjar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða með tölvupósti á skipulag@kopavogur.is fyrir kl. 15:00 mánudaginn 18. október 2021. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin
Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
Myndavefur Kópavogsbæjar birtir einnig gömul myndbönd úr Kópavogi. Sjáðu gömul myndbönd úr Kópavogi.
Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.
Álfhóll við Álfhólsveg er jökulsorfinn klapparhóll sem nýtur bæjarverndar sem bústaður álfa.
Vissir þú af opnu bókhaldi Kópavogsbæjar? Þarna getur þú skoðað hvert og í hvað peningarnir fara.