Markavegur 7 og 8

Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breyttu deiliskipulagi í Kópavogi.

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 13. apríl 2021 með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Markavegar 7 og 8. Í gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir einu hesthúsi á einni hæð ásamt gerði á hvorri lóð. Í breytingunni felst að á lóðunum verði reist ein sameiginleg reiðskemma 8,5 m á breidd og 12 m á lengd. Gólfkóti verði jafnaður þannig að gólfkóti Markavegar 7 fari úr 104,5 í 105 og gólfkóti Markavegar 8 fari úr 105,5 í 105.

Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 29. mars 2021. Nánar er vísað til kynningargagna.

Kynning hefst þann  29. maí 2021 og skal ábendingum og athugasemdum við framlagða tillögu skila skriflega til skipulagsdeildar Kópavogsbæjar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða með tölvupósti á skipulag@kopavogur.is fyrir kl. 15:00 fimmtudaginn 15. júlí 2021. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.

Markavegur 7 og 8
Tímabil
29. maí 2021 - 15. júlí 2021