Múlalind 3

Í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breyttu á deiliskipulagi  í Kópavogi.

Á fundi skipulagsráðs 16. nóvember  2020 var Lagt fram erindi Stefáns Ingólfssonar arkitekts dags. 19. október 2020 fh. lóðarhafa Múlalindar 3 með ósk um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að rými undir svölum á suðurhlið hússins er lokað af og þar komið fyrir 9,5 m2 viðbyggingu. Uppdráttur í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 5. nóvember 2020. 

Með vísan til 2. mgr. 43. gr. laga nr. 123/2010 er eftirtöldum lóðarhöfum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Múlalindar 1 og 4.

Kynning hefst þann 7. apríl 2021 og skal ábendingum og athugasemdum við framlagða tillögu skila skriflega til Skipulagsdeildar Kópavogs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða með tölvupósti á skipulag@kopavogur.is fyrir kl. 15:00 föstudaginn 7. maí 2021.

Múlalind 3
Tímabil
7. apríl 2021 - 7. maí 2021