Sæbólsbraut 38

Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Á fundi skipulagsráðs 17. maí 2021 var lagt fram erindi Arnhildar Pálmadóttur arkitekts fh. lóðarhafa um stakstæða viðbygginu við íbúðarhúsið á vesturhluta lóðarinnar. Fyrirhuguð viðbygging er 24,2 m² að heildarflatarmáli og rúmar útigeymslu og baðaðstöðu. Uppdrættir í mælikvarða 1:100 dags. 17. apríl 2021.

Skipulagsráð samþykkti með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Sæbólsbrautar 36, 40, 47, 49, 51 og 53.

Kynning hefst 28. maí 2021 og skal ábendingum og athugasemdum við framlagða tillögu skila skriflega til skipulagsdeildar Kópavogsbæjar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða með tölvupósti á skipulag@kopavogur.is fyrir kl. 12:00 föstudaginn 2. júlí 2021. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.

Sæbólsbraut 38
Tímabil
28. maí 2021 - 2. júlí 2021