Skólagerði 17

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 29. mars 2023 var lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 10. febrúar 2023 þar sem umsókn THG arkitekta dags. 6. febrúar 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 17 við Skólagerði er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um leyfi til að byggja 43 m² vinnustofu á lóðamörkum Skólagerðis 19 og Borgarholtbrautar 48. Nýtingarhlutfall lóðar eykst úr 0,43 í 0,48. Samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóða liggur fyrir.
Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 2. febrúar 2022.

Embætti skipulagsfulltrúa samþykkir með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 13, 15, 17, 19, 21 og 23 við Skólagerði og nr. 46, 48a, 48b, 48c, 38d og 50 við Borgarholtsbraut.

 Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. 

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 15:00 fimmtudaginn 11. maí 2023.

Skólagerði 17
Tímabil
4. apríl - 11. maí 2023
Kynningargögn
Uppdráttur