Þinghólsskóli

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 6. febrúar 2023 var lögð fram tillaga umhverfissviðs að breyttu deiliskipulagi á lóð Kópavogsbrautar 58. Þinghólsskóli, samþykkt í bæjarstjórn 26. september 2000 og birt í B-deild stjórnartíðinda 20. nóvember 2000. Í breytingunni felst að komið verði fyrir byggingarreit á einni hæð fyrir 2 samtengdar lausar skólastofur á suðvestur hluta lóðarinnar. Hámarks hæð byggingarreitar er áætluð 3 metrar og áætluð stærð byggingarreits er um 141m2. Skólastofum er ætlað að mæta skammtímaþörf fyrir kennslustofur þar til nýr Kársnesskóli við Skólagerði verður tekinn í notkun. Þær verða síðan fjarlægðar aftur og skólalóð sett í fyrra horf sem malbikað leiksvæði. Svæðið er skilgreint fyrir samfélagsþjónustu í Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2014. Uppdráttur í mkv.1:1000, 1:2000 og 1:200 dags. 6. febrúar 2023.

Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Kópavogsbrautar 55, 57, 59A, 59B, 59C, 59D, 61, 62, 63, 64, 65, 66, 57, 68, Þinghólsbraut 18, 20, 22, 24, 26, Vallargerðis 20, 22, 24, 25, 26 og 27.

Frestur til að gera athugasemdir við kynnta tillögu er til kl. 15:00 mánudaginn 13. mars 2023.

Ábendingum og athugasemdum við framlagða tillögu skal skila skriflega til Skipulagsdeildar Kópavogs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða með tölvupósti á skipulag@kopavogur.is.

Þinghólsskóli
Tímabil
10. febrúar til 13. mars 2023
Kynningargögn
Kynningaruppdráttur