Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 9. maí 2023 að auglýsa í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eftirfarandi tillögur að breyttu deiliskipulagi.
Í tillögunni felst breyting á mörkum skipulagssvæðis Vatnsenda-athafnasvæðis til samræmis við nýtt deiliskipulag fyrir Vatnsendahvarf/Vatnsendahæð. Þar er gert ráð fyrir nýrri 500 íbúða byggð á 29 hektara svæði með tvær akstursaðkomur innan Kópavogs, um Kambaveg og Turnahvarf. Mörk deiliskipulags Vatnsenda-athafnasvæðis færast upp að gönguleið meðfram Turnahvarfi og norðan við gönguleið við Kambaveg. Gatnamót Turnahvarfs og Kambavegar verða innan nýs deiliskipulagssvæðis Vatnsendahvarfs/Vatnendahæð.
Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:2000 ásamt greinargerð dags. 14. apríl 2023 og uppfært 17. maí 2023. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Ofangreind tillaga er aðgengilegar á vef Kópavogsbæjar, www.kopavogur.is og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1 frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá kl. 8:30 til 13:00. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar.
Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 12:00 föstudaginn 14. júlí 2023.
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin
Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.
Vissir þú af opnu bókhaldi Kópavogsbæjar? Þarna getur þú skoðað hvert og í hvað peningarnir fara.
Myndavefur Kópavogsbæjar birtir einnig gömul myndbönd úr Kópavogi. Sjáðu gömul myndbönd úr Kópavogi.
Álfhóll við Álfhólsveg er jökulsorfinn klapparhóll sem nýtur bæjarverndar sem bústaður álfa.