Vatnsendahvarf. Nýtt deiliskipulag. Skipulagslýsing.

Verkefnalýsing til undirbúnings deiliskipulagsgerðar til kynningar.

Vakin er athygli á því að nú stendur yfir í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, kynning á skipulagslýsingu fyrir gerð nýs deiliskipulags í Vatnsendahvarfi. Skipulagslýsingin nær yfir óbyggt svæði á Vatnsendahæð þar sem gert er ráð fyrir íbúðabyggð í tillögu að nýju aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 sem nú er í kynningu. Deiliskipulagssvæðið er um 29 hektarar og liggur suðaustan við fyrirhugaðan Arnarnesveg á mörkum Reykjavíkur og Kópavogs, Kórahverfis og Hvarfa í Vatnsenda.  Í skipulagslýsingunni koma m.a. fram helstu áherslur bæjaryfirvalda við fyrirhugaða deiliskipulagsgerð, upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu, fyrirhugað skipulagsferli svo og um kynningu og samráð.

Ofangreind verkefnalýsing er aðgengileg á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Ef óskað er nánari upplýsinga um skipulagslýsinguna er hægt að senda fyrirspurn á starfsmenn skipulagsdeildar Umhverfissviðs á netfangið skipulags@kopavogur.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 15:00 þriðjudaginn 25. maí 2021.

Vatnsendahvarf. Nýtt deiliskipulag. Skipulagslýsing.
Tímabil
23. apríl 2021 - 25. maí 2021