- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Starfsmannastefna Kópavogsbæjar nær til allra þeirra sem ráðnir eru í þjónustu Kópavogsbæjar.
Í starfsmannastefnu bæjarins má finna lýsingu á þeim almennu kröfum sem gerðar eru til starfsmanna svo hægt sé að veita megi íbúum Kópavogs eins góða þjónustu og mögulegt er.
Starfsmannastefnan á að tryggja starfsmönnum starfskilyrði og möguleika á að vaxa og dafna í starfi. Leitast skal við að skapa starfsmönnum aðstæður til að samræma starf og fjölskyldulíf.
Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna bæjarins er farið eftir lögum, ákvæðum kjarasamninga og/eða ráðningarsamninga, sbr. 57. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og VI. kafla samþykktar um stjórn Kópavogsbæjar.
Starfsmannastefna þessi nær einnig til þeirra starfsmanna Kópavogsbæjar, sem eru í stéttarfélögum, sem gera kjarasamninga á grundvelli laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur.