Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menningar- og mannlífsnefnd - 17. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - formaður
  • Guðný Svandís Guðjónsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sveinn Gíslason - aðalfulltrúi
  • Margrét Vilborg Tryggvadóttir - aðalfulltrúi
  • Ásgeir Þór Jónsson
    Boðaði forföll
    María Ellen Steingrímsdóttir
    Sat fundinn í staðinn
  • Einar Jóhannes Guðnason - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Vilborg Soffía Karlsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Soffía Karlsdóttir

Gestir fundarins frá kl. 17:00-17:30 voru Brynja Sveinsdóttir, Axel Ingi Árnason og Vigdís Jakobsdóttir.

Dagskrá fundar

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

01

Bæjarhátíð Kópavogs 2027

Tillaga meirihlutans um að veita styrk til bæjarhátíðar í Kópavogi sumarið 2027.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir með fjórum atkvæðum gegn atkvæði Margrétar Tryggvadóttur að ráðstafa 7.000.000 kr. úr sjóði nefndarinnar til bæjarhátíðar í Kópavogi árið 2027. Styrkveitingin er með fyrirvara um samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.


Bókun:

Tillaga Kópavogsbæjar um bæjarhátíð er óljós og án fjárhagsáætlunar og fellur því ekki að reglum sjóðsins. Engin skýr dagskrá fylgir tillögunni og engin fjárhagsáætlun eins og kveðið er á um í reglum sjóðsins og því telur fulltrúi Samfylkingarinnar að hún sé ótæk til afgreiðslu.

Þá er þetta gríðarleg blóðtaka af takmörkuðum fjármunum menningarsjóðsins og lítið eftir fyrir almenna umsækjendur. Samkvæmt reglum menningarsjóðsins eru tekjur hans 0,5% af 6,7% útsvarsstofni nema annað sé ákveðið við gerð fjárhagsáætlunar. Sjóðurinn var skorinn niður eftir hrun og hefur ekki náð þessu marki síðan. Löngu tímabært er að sjóðurinn sé leiðréttur.

Margrét Tryggvadóttir

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

02

Beiðni um framlag til menningarhúsanna árið 2027

Óskað er eftir framlagi til menningarhúsanna í Kópavogi vegna sameiginlegra viðburða og annarra verkefna 2027.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir framlag að upphæð 23.000.000 kr. til sameiginlegra viðburða og verkefna menningarhúsa Kópavogs árið 2027. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Bókun:

Samkvæmt reglum menningarsjóðsins skulu tekjur hans vera 0,5% af 6,7% útsvarsstofni nema annað sé ákveðið við gerð fjárhagsáætlunar. Sjóðurinn var skorinn niður eftir hrun og hefur ekki náð þessu marki síðan sem bitnar á menningarstarfi í menningarhúsum bæjarins. Löngu tímabært er að sjóðurinn sé leiðréttur.

Margrét Tryggvadóttir

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

03

Styrkumsókn vegna Púlsins 2027

Molinn og Salurinn óska eftir styrk að upphæð kr. 1.400.000 til að styðja við grasrót tónlistar og veita nýjum röddum aðgang að faglegu tónleikaumhverfi.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita umsækjendum styrk að upphæð 500.000 kr. vegna verkefnisins. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

04

Brekkusöngur í Salahverfi. Beiðni um styrk-samstarf

Einstaklingar óska eftir 500.000 kr. styrk vegna útitónleikahalds í Kópavogi.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita umsækjendum styrk að upphæð 250.000 kr. vegna brekkusöngs sem fram fór 2026.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

05

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð kr. 500.000 vegna sýningar, gjörnings og veggverks í samvinnu við Y-gallerý.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita umsækjanda styrk að upphæð 500.000 kr. vegna verkefnisins. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

06

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Samkór Kópavogs óskar eftir styrk að upphæð kr. 500.000 vegna starfsemi kórsins árið 2027.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita Samkór Kópavogs styrk að upphæð 300.000 kr. vegna verkefnisins. Gert er ráð fyrir að kórinn komi fram á vegum Kópavogsbæjar einu sinni á árinu skv. samkomulagi við forstöðumann menningarmála. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

07

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Leikhópurinn Lotta óskar eftir styrk að upphæð 150.000 kr. til að sýna fjölskyldusöngleik á Rútstúni sumarið 2027.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita Leikhópnum Lottu ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

08

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Hjólastrætó Kársness óskar eftir styrk að upphæð 44.995 kr. til að festa kaup á hátalara fyrir hjólaferð foreldra og barna á föstudagsmorgnum.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita umsækjanda 44.995 kr. til verkefnisins. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

09

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Tækni Framtíðar ehf. sækir um styrk að upphæð kr. 600.000 til að bjóða upp á sex ókeypis smiðjur á aðalsafni og Lindasafni um gervigreind og skapandi skrif.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita Tækni Framtíðar ehf. ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

10

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur sækir um styrk að upphæð 160.000 kr. til að halda PEERS námskeið í félagsfærni fyrir börn og fullorðna.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita umsækjanda ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar. Umsækjanda er góðfúslega bent á að hafa samband við velferðarsvið vegna umsóknarinnar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

11

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Prinsessur sækja um styrk að upphæð 305.000 kr. til að halda fjórar fjöltyngdar sögustundir og föndurviðburði í Bókasafni Kópavogs með sérstakri áherslu á fjölskyldur flóttafólks og innflytjenda.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita Prinsessum ehf. ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar. Nefndin bendir umsækjanda á möguleika á samstarfi við Bókasafn Kópavogs um verkefnið.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

12

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Prinsessur sækja um styrk að upphæð 580.000 kr. til að standa straum að árlegri ókeypis páskaeggjaleit fyrir 3-9 ára börn í Guðmundarlundi páskana 2027.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita Prinsessum ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

13

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 1.000.000 kr. til að hanna og framleiða fatalínu sem verður lituð með jurtum úr Kópavogi.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita umsækjanda ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

14

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Bílskúrsbandið Hekla og mæðraveldið óskar eftir styrk að upphæð 575.000 króna til að halda tónleika í Salarlaug þar sem flutt verður ábreiðutónlist með femínískum boðskap.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir ekki sérstakan styrk úr sjóðnum að svo stöddu en telur tónleikana geta hentað sem hluta af dagskrá Bæjarhátíðar Kópavogs 2027. Nefndin felur forstöðumanni menningarmála að kanna mögulegt samstarf við umsækjanda.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

15

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 300.000 kr. til að semja nýtt verk að beiðni Skólakórs Kársness, sem kórinn mun flytja haustið 2027 í tilefni af 70 ára afmæli skólans.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita umsækjanda styrk að upphæð 200.000 kr. vegna verkefnisins. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

16

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Leikfélag Kópavogs óskar eftir styrk að upphæð 1.800.000 kr. vegna 70 ára afmælissýningarinnar Við byggjum bæ. Sýningin er byggð á sögum, sérkennum og hversdagslífi Kópavogs.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita Leikfélag Kópavogs styrk að upphæð 500.000 kr. vegna verkefnisins. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

17

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Umsækjendur óska eftir styrk að upphæð 1.500.000 kr. til að halda hádegistónleika í fjórum kirkjum Kópavogs. Tónleikarnir eru aðallega ætlaðir eldri borgurum sem búa ekki á dvalarheimilum.

Menningar- og mannlífsnefnd tekur jákvætt í erindið og samþykkir að vísa því til Stefáns Arnarsonar, forstöðumanns félagsstarfs aldraðra, til frekari skoðunar með tilliti til mögulegrar styrkveitingar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

18

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Beck Liborius ehf. sækir um styrk að upphæð 600.000 kr. til að halda námskeið á sviði kvikmyndagerðar undir heitinu Bíóklúbbur barnanna sumarið 2027. Námskeiðinu er ætlað að virkja áhuga barna á faginu. Styrknum er ætlað að lækka kostnað þátttakenda.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

19

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Leikhópurinn Skellibjalla sækir um styrk að upphæð kr. 1.450.000 til að setja upp nýja leikgerð í Salnum undir heitinu Jólaævintýri Skröggs. Fyrirhugaðar eru 16 sýningar í desember 2026.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita umsækjanda styrk að upphæð 400.000 kr. vegna verkefnisins.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

20

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 500.000 kr. fyrir sýningu á samtímadansverkinu BAND sem unnið er í samstarfi við nýja íslenska ballettflokkinn Ballet Axis.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

21

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Hljómsveitin Dr. Gunni óskar eftir styrk að upphæð 250.000 kr. til að standa straum að hljómplötuútgáfu og tónleikum í tilefni af 25 ára afmæli hljómsveitarinnar á næsta ári.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir ekki sérstakan styrk úr sjóðnum að svo stöddu en telur verkefnið geta hentað sem hluta af dagskrá Bæjarhátíðar Kópavogs 2027. Nefndin felur forstöðumanni menningarmála að kanna mögulegt samstarf við umsækjanda.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

22

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 600.000 kr. til að afla heimilda og skrá sögu Kársness. Verkefnið er óhagnaðardrifið og niðurstaðan opin öllum á vefnum Götusögur.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar. Nefndin bendir einnig góðfúslega á mögulegt samstarf umsækjanda við Sögufélag Kópavogs.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

23

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur sækir um styrk að upphæð 1.300.000 kr. fyrir dans- og tónlistarverkefnið Dansandi krakkastappa sem felur í sér gjaldfrjálsar danssmiðjur og mögulega lokasýningu.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir ekki sérstakan styrk úr sjóðnum að svo stöddu en telur verkefnið geta hentað sem fjölskyldu- og þátttökuverkefni í sameiginlegri dagskrá menningarhúsanna og/eða á Bæjarhátíð Kópavogs 2027. Nefndin felur forstöðumanni menningarmála að kanna þann möguleika.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

24

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Karlakór Kópavogs óskar eftir styrk að upphæð 1.250.000 kr. til kaupa á kórpöllum sem nýst geta öllu kórastarfi bæjarfélagsins með það að markmiði að auðga tónlistarlíf bæjarins.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

25

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Karlakór Kópavogs sækir um styrk að upphæð 650.000 kr. til að styðja við menningar- og félagsstarf kórsins á starfsárinu 2026-2027. Kórinn hefur það að markmiði að efla söngmenningu, varðveita íslenskar sönghefðir og stuðla að virku og fjölbreyttu félagsstarfi.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita Karlakór Kópavogs styrk að upphæð 300.000 kr. vegna verkefnisins. Gert er ráð fyrir að kórinn komi fram á vegum Kópavogsbæjar einu sinni á árinu skv. samkomulagi við forstöðumann menningarmála. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

26

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Forvitnissakir, félagasamtök óska eftir styrk að upphæð 800.000 kr. til að framkvæma þátttökusviðsverk og röð gjörninga og viðburða fyrir börn á aldrinum 8-12 ára í verslunarmiðstöðinni Smáralind veturinn 2027-28.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

27

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Sarabel ehf. sækir um styrk að upphæð 500.000 kr. til að sýna nýtt, íslenskt jólaleikrit fyrir og með börnum á leikskólaaldri í leikskólum og bókasöfnum.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

28

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Kvennakór Bliku óskar eftir styrk að upphæð 500.000 kr. til áframhaldandi starfsemi á afmælisárinu 2027, en meðal skipulagðra viðburða næsta árs eru tónleikar með þemanu Konur, æfingaferð og tónleikar með öðrum kór.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita Kvennakór Bliku styrk að upphæð 300.000 kr. vegna verkefnisins. Gert er ráð fyrir að kórinn komi fram á vegum Kópavogsbæjar einu sinni á árinu skv. samkomulagi við forstöðumann menningarmála. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

29

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Ópus Reykjavík, félagasamtök óska eftir styrk að upphæð 550.000 kr. til að standa fyrir listviðburði í Litla Saunahúsinu á Kársnesi 7. og 8. desember 2026 m.a. með það að markmiði að færa samtímalist út fyrir hefðbundin menningarrými.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

30

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur sækir um styrk að upphæð 500.000 kr. til að halda útgáfutónleika í Salnum í apríl 2027 í tilefni af útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar, Nú eru góð ráð dýr.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar. Umsækjanda er vinsamlega bent á að kanna hugsanlegt samstarf við Molann, ungmennahús.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

31

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur sækir um styrk að upphæð 950.000 kr. vegna verkefnisins Til útláns - bókverk í umferð, sem unnið er í samstarfi við Bókasafn Kópavogs frá janúar til desember 2027.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita umsækjanda styrk að upphæð 300.000 kr. vegna verkefnisins. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

32

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Dansgarðurinn og FORWARD Youth Company sækja um styrk að upphæð 439.354 kr. til að standa fyrir ókeypis dansviðburði utandyra í Hamraborg í júní 2027 þar sem sýndar verða styttri útgáfur tveggja samtímadansverka sem frumsýnd verða í Tjarnarbíói í maí 2027.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir ekki sérstakan styrk úr sjóðnum að svo stöddu en telur dansviðburðinn geta hentað vel sem dagskrárlið á Bæjarhátíð Kópavogs 2027. Nefndin felur forstöðumanni menningarmála að kanna mögulegt samstarf við umsækjanda.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

33

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Mossley sækir um styrk að upphæð 500.000 kr. til að standa fyrir tónleikaröðinni Kársnesið rokkar sem ætlað er ungum og upprennandi hljómsveitum í Kópavogi. Tónleikaröðin stendur frá nóvember 2026 til maí 2027.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Maríu Ellenar Steingrímsdóttur að veita Mossley styrk að upphæð 250.000 kr. vegna verkefnisins. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

34

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Umsækjendur óska eftir styrk að upphæð 600.000 kr. vegna Brekkusöngs 2027, sem fram fer í brekkunni á milli Roðasala og Skjólsala.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita umsækjendum styrk að upphæð 250.000 kr. Nefndin telur jafnframt að tónleikarnir geti hentað sem hluti af dagskrá Bæjarhátíðar Kópavogs 2027. Nefndin felur forstöðumanni menningarmála að kanna mögulegt samstarf við umsækjendur.

Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

35

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 433.000 kr. vegna útgáfutónleika í Salnum þann 3. desember 2026.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

36

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 200.000 kr. til að halda Íslandsmeistaramót í kerlingafleytingum í Kópavogi á sumardaginn fyrsta árið 2027.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita umsækjanda styrk að upphæð 100.000 kr. vegna verkefnisins. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

37

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Pera Óperukollektíf, félag sækir um styrk að upphæð 2.000.000 kr. til að standa fyrir fjölbreyttum söngviðburðum í bænum; óperugöngum og/eða barnaóperu í skólum; óperusýningu og/eða spennandi söngtónleikum í Salnum; pop-up viðburðum í hverfum og/eða tónleikum í heimahúsum.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita Pera Óperukollektíf, félag styrk að upphæð 500.000 kr. vegna verkefnisins. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

38

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Sólfinna óskar eftir styrk að upphæð 500.000 kr. til að standa fyrir jazztónleikum ásamt kvartett sínum á sumarhátíð bæjarins.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir ekki sérstakan styrk úr sjóðnum að svo stöddu en telur tónleikana geta hentað sem dagskrárlið á Bæjarhátíð Kópavogs 2027, mögulega í samstarfi við Salinn og önnur menningarhús. Nefndin felur forstöðumanni menningarmála að kanna þann möguleika.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

39

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Kór Lindakirkju óskar eftir styrk að upphæð 500.000 kr. til að standa fyrir tónleikunum Kópavogur í gospel í Lindakirkju vorið 2027. Flutt verða lög þekktra tónlistarmanna úr Kópavogi í nýrri útsetningu.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita Kór Lindakirkju styrk að upphæð 300.000 kr. vegna verkefnisins. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

40

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 997.694 kr. til að heimsækja leikskóla í Kópavogi og flytja þar nýja barnatónlist fyrir nemendur og kennara.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

41

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 500.000 kr. til að fullgera handrit að barnabók, prófa það með barnahóp og móta fyrstu hugmyndir að söguleið um bæinn.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

42

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 940.000 kr. til að standa fyrir fjórum fjölþjóðlegum viðburðum í Gerðarsafni þar sem myndlist, silkiþrykk á textíl og matarupplifun mætast með þátttöku ólíkra listamanna.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar. Nefndin bendir umsækjanda á að verkefnið gæti átt samleið með viðburðum í Gerðarsafni.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

43

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Leikhópurinn BingoBango sf. óskar eftir styrk að upphæð 2.600.000 kr. til að setja upp barnaleiksýninguna Innblástur í Kópavogi.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita BingoBango sf. styrk að upphæð 500.000 kr. vegna verkefnisins. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

44

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 1.000.000 kr. til að standa fyrir afmælisfögnuði í Salnum og Krónikunni í tilefni af fertugsafmæli kvikmyndarinnar Stellu í orlofi.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita umsækjanda styrk að upphæð 250.000 kr. vegna verkefnisins.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

45

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Tveir einstaklingar óska eftir styrk að upphæð 980.000 kr. til að standa fyrir sjö tónleikum á hjúkrunarheimilum og safnaðarheimili bæjarfélagsins þar sem flutt verða gömul sönglög í bland við þekkt dægurlög.

Menningar- og mannlífsnefnd tekur jákvætt í erindið og samþykkir að vísa því til Stefáns Arnarsonar, forstöðumanns félagsstarfs aldraðra, til frekari skoðunar með tilliti til mögulegrar styrkveitingar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

46

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Umsækjendur óska eftir styrk að upphæð 1.200.000 kr. til að vinna að myndlistarverkefninu FÖR, þar sem safnað verður minningum Kópavogsbúa tengdum íþróttahúsum bæjarins.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir ekki sérstakan styrk úr sjóðnum að svo stöddu en telur FÖR geta hentað sem sameiginlegt verkefni menningarhúsanna og sem þátttökuverkefni á Bæjarhátíð Kópavogs 2027. Nefndin felur forstöðumanni menningarmála að kanna mögulegt samstarf.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

47

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Kraðak óskar eftir styrk að upphæð 2.286.500 kr. til að standa fyrir fjórum hátíðlegum samverustundum fyrir börn og fjölskyldur á aðventunni í Guðmundarlundi undir heitinu Jólalundur þar sem náttúra, menning og íslenskar jólahefðir mætast. Óskað er eftir þriggja ára samstarfssamningi fyrir árin 2027-2029 til að tryggja samfellu og uppbyggingu verkefnisins, en til vara styrk fyrir árið 2027.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsóknarinnar var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Nefndin telur verkefnið áhugavert og felur forstöðumanni menningarmála að kanna möguleika á samstarfi um verkefnið á öðrum vettvangi.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

48

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Virago sf. óskar eftir styrk að upphæð 745.000 kr. til að halda gjaldfrjálst Tangókvöld í Kópavogi í samstarfi við Tangófélagið, fimm manna hljómsveit og DJ. Tangókvöldið gæti orðið hluti af Bæjarhátíð Kópavogs.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir ekki sérstakan styrk úr sjóðnum að svo stöddu en telur Tangókvöld geta hentað vel sem dagskrárlið á Bæjarhátíð Kópavogs 2027. Nefndin felur forstöðumanni menningarmála að kanna mögulegt samstarf við umsækjanda og Tangófélagið.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

49

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 400.000 kr. til að setja upp hljóðinnsetninguna Tif á Kópavogshátíðinni 2027. Verkið felur í sér hljóðræna gönguleið um grænt svæði í Kópavogi, sem listamaðurinn mun leiða í eitt eða tvö skipti.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita umsækjanda styrk að upphæð 200.000 kr. vegna verkefnisins. Nefndin telur Tif geta hentað vel í dagskrá Bæjarhátíðar Kópavogs 2027 og mögulega í samstarfi við Náttúrusafn. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

50

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 400.000 kr. til útgáfu- og afmælistónleika í Salnum í ágúst 2027 í tilefni af útgáfu nýrrar plötu, Síðast en ekki síst, sem inniheldur áður óútgefin lög við íslenskan skáldskap. Gert er ráð fyrir miðasölu.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

51

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Söguhringur Frásagnarfélag óskar eftir styrk að upphæð 420.000 kr. til að halda fimm opna söguhringi í Kópavogi, einn í hverju hverfi bæjarins með það að markmiði að efla frásagnarlist, samveru og menningarlega þátttöku í nærumhverfi íbúa.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita Söguhring Frásagnarfélagi styrk að upphæð 150.000 kr. vegna verkefnisins. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

52

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Y gallery sækir um styrk að upphæð 1.500.000 kr. til að halda sex sýningar íslenskra og erlendra samtímalistamanna árin 2027-2028 í sýningarrými fyrrum bensínstöðvar Olís í Hamraborg. Aðgangur að sýningunum er gjaldfrjáls.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir með fjórum atkvæðum gegn atkvæði Maríu Ellenar Steingrímsdóttur að veita Y gallery styrk að upphæð 500.000 kr. vegna verkefnisins. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

53

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Kammerhópurinn Accademia delle dissonanze sækir um styrk að upphæð 400.000 kr. til að halda þrenna tónleika í Kópavogi (í Salnum, Lindakirkju og Hjallakirkju) á starfsárinu 2027-2028, þar sem eldri tónlist er leikin á upprunaleg hljóðfæri.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

54

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 600.000 kr. til að halda fimm ókeypis söngstundir með virkri þátttöku barna á aldrinum 0-10 ára og fjölskyldum þeirra á mismunandi stöðum í Kópavogi á tímabilinu frá janúar 2027 til janúar 2028.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir ekki sérstakan styrk úr sjóðnum að svo stöddu en telur Syngjum saman í Kópavogi geta hentað sem fjölskylduverkefni í bókasöfnum, öðrum menningarhúsum og/eða á Bæjarhátíð Kópavogs 2027. Nefndin felur forstöðumanni menningarmála að kanna samstarfsgrundvöll.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

55

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Umsækjendur óska eftir styrk að upphæð 176.000 kr. til að setja upp nýjan gagnvirkan söngleik, Meðleik, sem byggir á klassískum íslenskum sönglögum, með þátttöku áhorfenda. Sýnt verður í Salnum, Reykjanesbæ og á Akureyri.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita umsækjendum styrk að upphæð 150.000 kr. vegna verkefnisins. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

56

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 450.000 kr. til verkefnisins ÆTIBEÐ, sem felst í að setja upp gróðurbeð með ætilegum plöntum á fjórum leiksvæðum í Kópavogi sumarið 2027 og fræða íbúa um ræktun þeirra.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar. Nefndin bendir umsækjanda góðfúslega á að verkefnið gæti átt samleið með umhverfissviði Kópavogsbæjar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

57

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Vökufélagið - félag þjóðlistafólks sækir um styrk að upphæð 3.000.000 kr. fyrir árlega hátíð sína, en styrknum er einkum ætlað að standa undir ungmennahátíð fyrir 16-26 ára.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

58

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 900.000 kr. til að halda stóran dansviðburð með raftónlist og plötusnúðum í Kópavogi.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

59

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Umsækjendur óska eftir styrk að upphæð 2.500.000 kr. til að kanna möguleika á stofnun atvinnuleikhóps í Kópavogi undir heitinu Listaleikhúsið í Kópavogi (LíK).

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

60

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Elja kammersveit óskar eftir styrk að upphæð 1.329.000 kr. til að greiða laun flytjenda á tónleikunum Tileinkun á Tíbrá í Salnum auk kynningartónleika annars staðar í Kópavogi.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

61

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Félag íslenskra píanóleikara óskar eftir styrk að upphæð 2.250.000 kr. til að halda Alþjóðlegu píanókeppnina og sumarnámskeið WPTA í þriðja sinn í samstarfi við Salinn, Tónlistarskóla Kópavogs og Opna Listaháskólann.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita Félagi íslenskra píanóleikara styrk að upphæð 500.000 kr. vegna verkefnisins. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

62

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Tríó Jós óskar eftir styrk að upphæð 2.354.040 kr. til að flytja 21 tónlistarleiksýningu á öllum opinberum leikskólum Kópavogs til að kynna börnum klassíska tónlist og þjóðlagatónlist með söng, hreyfingu og virkri þátttöku.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

63

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur óskar eftir styrk að upphæð 1.480.000 kr. til að þróa og setja upp þátttökuleikhús- og ritsmiðjuverkefnið Allir sem við þekktum sem að dóu, með einni eða fleiri sýningum.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að veita ekki styrk að þessu sinni. Við afgreiðslu umsókna var tekið mið af markmiðum og áherslum sjóðsins, heildarmati á innsendum umsóknum og því fjármagni sem nefndin hefur til ráðstöfunar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

64

Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Sundballettinn Eilífðin sækir um styrk að upphæð 400.000 kr. til að halda sex sundballetttíma í sundlaugum Kópavogs haustið og veturinn 2027.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita umsækjanda styrk að upphæð 250.000 kr. vegna verkefnisins. Nefndin telur jafnframt að það geti hentað sem hluti af dagskrá Bæjarhátíðar Kópavogs 2027. Nefndin felur forstöðumanni menningarmála að kanna mögulegt samstarf við umsækjanda. Samþykkt styrkveitingarinnar er háð endanlegu samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.