Frístundastyrkur
Kópavogur veitir frístundastyrk fyrir börn og ungmenni á aldrinum 5–18 ára með lögheimili í Kópavogi. Markmiðið er að öll börn og ungmenni geti tekið þátt í uppbyggilegu starfi, óháð aðstæðum.
Hér að neðan er yfirlit yfir þau félög og námskeið sem eru samþykkt í frístundakerfi Kópavogs.
Um styrkinn
Þegar barn er skráð hjá félagi eða á námskeið sem er samþykkt í frístundakerfi Kópavogs birtist sjálfkrafa val um að nýta frístundastyrkinn við greiðslu.
Upphæð frístundastyrks:
- 5 ára: 90.000 kr.
- 6–18 ára: 70.000 kr.
Hægt er að fá upplýsingar um stöðu styrks með því að senda tölvupóst á þjónustuver.
- Gildir frá 1. janúar til 31. desember.
- Má nota hvenær sem er á árinu.
- Flyst ekki milli ára.
- Gildir ekki fyrir sumarnámskeið.
- Gildir ekki fyrir búnað, fatnað eða ferðir.
- Styrkur getur ekki verið hærri en kostnaður við starfið.
- Ekki er hægt að breyta eða endurgreiða eftir ráðstöfun.
- Ekki þarf að skila kvittunum.
Hvernig virkar þetta?
- Foreldrar eða forsjáraðilar með sama lögheimili og barnið.
- Aðrir ættingjar geta fengið heimild með leyfi.
Þegar barn verður 18 ára sér það sjálft um styrkinn með rafrænum skilríkjum.
- Barnið þarf að eiga lögheimili í Kópavogi.
- Námskeiðið þarf að standa í að minnsta kosti 10 vikur samfellt.
- Starf fer fram undir leiðsögn fagaðila.
- Starf byggir á uppeldislegum gildum og forvörnum.
Ungmenni geta notað styrkinn í líkamsræktarkort. Miðað er við fæðingarár.
Stöðvar þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði, meðal annars:
- Til að starfsemi geti talist styrkhæf þarf námskeiðið eða starfsemin að standa yfir í að minnsta kosti 10 vikur samfellt.
- Starfsemin þarf að vera byggð á uppeldislegum gildum og forvörnum og fara fram undir leiðsögn menntaðs fagaðila á sviði íþrótta eða tómstunda.
- Ekki er heimilt að flytja styrkinn milli ára.
- Ekki er hægt að nýta styrkinn á sumarnámskeið.