Útivist
Í Kópavogi er að finna fjölmörg útivistarsvæði. Strandlengja, dalir, garðar, leiksvæði og göngu- og hjólastígar skapa góðar aðstæður til útiveru og hreyfingar fyrir fólk á öllum aldri.
Opin svæði

Bæjarland Kópavogs er kjörið til útivistar og þar má finna fjöldann allan af fjölbreyttum og skemmtilegum opnum svæðum. Meðal þeirra eru strandlengjan á Kársnesi, Kópavogsdalur, Fossvogsdalur og Borgarholt. Einnig eru þar falleg garðsvæði eins og Rútstún, Hlíðargarður, trjásafnið í Meltungu í Fossvogsdal og Guðmundarlundur.
Leiksvæði
Í bænum eru á sjötta tug opinna leiksvæða. Þjónustumiðstöð sér um viðhald þeirra og tekur við ábendingum um lagfæringar.
Skógræktar- og uppgræðslusvæði
Eiginleg skógrækt í landi Kópavogs hófst árið 1990 með Landgræðsluskógaverkefni. Um 650 hektara landsvæðis í Kópavogi er skilgreint fyrir skógrækt og uppgræðslu og eru þau svæði að finna í Vatnsendalandi og Lækjarbotnum.
Fróðleiksskilti
Undanfarna tvo áratugi hafa fróðleiksskilti verið sett upp víða í Kópavogi. Á þeim má finna upplýsingar um fjölbreytt efni, meðal annars náttúruminjar, þjóðtrú og dýralíf. Frá árinu 2012 hafa sum skiltanna verið sett upp í samstarfi við Sögufélag Kópavogs og hefur Umhverfis- og samgöngunefnd haft umsjón með staðsetningu þeirra og frágangi.
Skiltunum er ætlað að fræða bæjarbúa um umhverfið og varpa ljósi á sögu bæjarins.
Göngu- og hjólastígar

Stígakerfi Kópavogsbæjar skiptist upp í stofnleiðir, tengileiðir og almenna stíga. Stofnleiðir eru helstu samgöngustígarnir og eru greiðfærir, vel þjónustaðir allt árið og með forgang fram yfir hliðarumferð.
Tengistígar tengja stofnleiðir við almenna stíga og þéttbýlissvæði. Til þeirra teljast meðal annars tómstunda- og útivistarstígar sem eru aðallega nýttir til afþreyingar. Almennir stígar eru allir aðrir stígar sem falla ekki undir þessar skilgreiningar.
Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins, sem var undirritaður árið 2019, felur í sér sameiginlega áætlun um uppbyggingu samgönguinnviða til ársins 2033. Með sáttmálanum verður fjárfest í uppbyggingu stofnleiða fyrir gangandi og hjólandi um allt höfuðborgarsvæðið.
Helstu stígar í stígakerfi Kópavogs fá vetrarþjónustu en nánar má lesa um fyrirkomulagið hér.
Hljóðgöngur
Flanerí eru hljóðgöngur um sögu og samtíma í hlaðvarpsformi. Hljóðgöngur þekkjast víða um heim þar sem þær flétta saman útiveru, hreyfingu, sögu, borg og upplifun. Flanerí er hins vegar nýjung í íslensku menningarlandslagi sem tengir sögu- og menningargöngur við nútímatækni og þægindi.