Bílastæðasjóður
Bílastæðasjóður Kópavogsbæjar sér um bílastæðamál og eftirlit með stöðvun og lagningu ökutækja í bænum.
Markmiðið er að tryggja örugga og greiða umferð fyrir öll, óháð ferðamáta.
Hlutverk og starfsemi
Bílastæðasjóður er í eigu Kópavogsbæjar og starfar á vegum bílastæðanefndar.
Stöðuverðir sinna eftirliti og leggja á stöðvunarbrotagjöld þegar ökutæki eru ekki lögð í samræmi við umferðarlög.
Stöðvunarbrotagjöld eru sameiginlegt heiti yfir stöðubrotsgjöld og aukastöðugjöld. Í upphafi verður eingöngu lagt á stöðubrotsgjald í Kópavogi.
Gjald er lagt á þegar ökutæki er stöðvað eða lagt ólöglega, til dæmis:
- Við bannmerki.
- Á gangstétt.
- Of nálægt gangbraut.
- Eða við aðrar aðstæður samkvæmt umferðarlögum.
Gjald er lagt á fyrir að leggja í bílastæði hreyfihamlaðra án þess að gildu stæðiskorti fyrir hreyfihamlaða sé framvísað.
Þetta gjald verður í upphafi ekki innheimt í Kópavogi.
Dæmi um algeng brot:
- Bannað að stöðva eða leggja.
- Lagt á gangbraut eða of nálægt henni.
- Lagt á gangstétt eða göngustíg.
- Lagt í stæði fyrir hreyfihamlaða án leyfis.
- Lagt fyrir innkeyrslu.
- Lagt í stæði sem er frátekið fyrir ákveðin ökutæki.
Rökstuðningur og endurupptaka
- Hægt er að óska eftir rökstuðningi fyrir álagningu innan 14 daga frá álagningu.
- Einnig er hægt að óska eftir endurupptöku ákvörðunar innan 28 daga.
- Afgreiðslutími er að jafnaði ein til tvær vikur.
- Heimilt er að óska eftir endurupptöku ákvörðunar um álagningu stöðvunarbrotagjalds innan 28 daga frá dagsetningu álagningar.
Beiðni um endurupptöku
Hér er hægt að senda inn athugasemd vegna ákvörðunar um álagningu stöðvunarbrotagjalds.
Senda athugasemd.Gjöld og innheimta
Gjaldskrá Bílastæðasjóðs gildir frá 1. nóvember 2018.
Gjöld eru send sjálfkrafa í bankakerfi og birtast sem ógreiddar kröfur í netbanka eiganda eða umráðamanns ökutækis.
Hægt er að greiða stöðvunarbrotagjöld í öllum bönkum og sparisjóðum hér á landi.
Sé annar en eigandi eða umráðamaður ökutækis að greiða gjaldið þarf viðkomandi að slá kröfunúmer seðilsins inn, en það er gert með því að velja "Greiðslur" og síðan "Greiðsluseðill".
Ekki er hægt að millifæra beint inn á reikning Bílastæðasjóðs.
Álagning miðast við skráðan eiganda eða umráðamann ökutækis.
Ekki er heimilt að færa kröfu milli aðila, þó aðrir geta greitt gjaldið.
Ef gjald er ekki greitt hækkar það um:
- 50% eftir 14 daga.
- 100% eftir 28 daga.
Ógreidd gjöld fara í innheimtu og geta leitt til lögveðs í ökutæki og frekari aðgerða samkvæmt 2. - 5. mgr. 110. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.