Beint í efni

Vetr­ar­þjón­usta

Þjónustumiðstöð Kópavogs sér um snjómokstur, hálkuvarnir og hreinsun gatna og stíga. Þjónustunni er stýrt í samstarfi við vaktstöð Vegagerðarinnar.

Vetrarþjónusta er virk nær allan sólarhringinn frá 1. október til 1. maí. Skipulag þjónustu tekur mið af veðri og aðstæðum og getur raskast í mikilli ofankomu eða óveðri.

Vertu í bandi

Hægt er að senda inn ábendingu ef snjómokstur, hálkuvarnir eða hreinsun stíga og gatna þarfnast athugunar.

Senda ábendingu

Teg­und­ir vetr­ar­þjón­ustu

Vetrarþjónusta í Kópavogi felur í sér snjómokstur, hálkuvarnir og hreinsun gatna, stíga og gangstétta yfir vetrartímann.

Flokk­un gatna og stíga

Forgangur þjónustu fer eftir flokkun gatna og aðstæðum hverju sinni.

Nýbýlavegur og Arnarnesvegur eru skilgreindir sem þjóðvegur í þéttbýli og eru þjónustaðir af Vegagerðinni.

Fylgstu með vetr­ar­þjón­ust­unni

Í kortasjá Kópavogs er hægt að fylgjast með framvindu vetrarþjónustu, sjá þjónustuflokka gatna og stíga, hvaða leiðir hafa verið þjónustaðar síðustu klukkustundir og hvar saltkistur eru staðsettar í bænum.

Sjá kortasjá

Athugið

  • Þjónusta getur raskast í mikilli ofankomu eða óstöðugu veðri. Við snjóstorm geta vetrarþjónustutæki beðið með útköll þar til veðri slotar.
  • Tröppur, þröngir göngustígar og aðrir staðir sem vélar komast ekki að eru mokaðir af starfsfólki Kópavogsbæjar á opnunartíma Þjónustumiðstöðvar.
  • Kópavogsbær hreinsar eða fjarlægir að öllu jöfnu ekki snjóruðninga sem myndast framan við innkeyrslur að húsum eða við lóðarmörk.