Fossvogsdalur
Fossvogsdalur, sem áður kallaðist Fossvogsmýri, er vettvangur þessarar göngu.
Hún er hlykkjótt og fer aðeins yfir bæjarmörkin í Reykjavík en með henni er hægt að fá góða yfirsýn yfir náttúru og nokkra þætti úr sögu þessa skjólgóða dals.
- Lengd6,5 km
- ErfiðleikiLétt
- Tími1,5 klst
- Hækkun15 m
- Undirlagsléttir stígar (malbik, möl og gangstéttar)
- Upphaf/endirÍþróttasvæðið Fagralundi
Gönguleiðin
Upphafsstaður er miðsvæðis í dalnum við íþróttasvæðið Fagralund og þaðan er hægt að velja þrjá göngumöguleika: taka vesturhlutann (um 2,5 km) eða austurhlutann (um 4 km) eða allan dalinn.
Í leiðsögninni í Wikiloc appinu er bent á áhugaverða staði eins og Hermannsskóg, Norræna vinalundinn, Álfaskóg og einnig Trjásafnið í Meltungu sem er austast í dalnum. Þar er einnig vísað á nýbýlin sem byggðust á nokkrum stöðum í dalnum á 20. öldinni, Lund, Snæland, Ástún, Grænahlíð og Meltunga.
Það er hægt að ganga um þetta svæði allt árið og eingöngu þarf að hugsa um að klæða sig í takt við veður. Hugsanlega þarf hálkubrodda á vissum tímum á veturna.
Gróðursældin er mikil og fróðlegt að sjá grænu sprotana fyrst á vorin en ekki síður hina fjölbreyttu liti sem haustið færir með sér.
Fuglalífið nær hámarki á sumrin og margar tegundir verpa á svæðinu. Reyndar er fjölbreytt fuglalíf í dalnum allt árið og gaman að sjá þær tegundir staðfugla sem kjósa að þreyja veturinn í Fossvogsdalnum.
Það er hægt að ganga um þetta svæði allt árið og þetta er við allra hæfi. Það eru mörg bílastæði við íþróttasvæðið og skólann.