Beint í efni

Fyr­ir starfs­fólk

Verið velkomin að fræðast nánar um Kópavogsbæ
sem eftirsóknarverðan vinnustað.

Vel­kom­in til starfa

Markmið Kópavogsbæjar er að rækta sem best þann mannauð sem felst í starfsfólki bæjarins.

Lögð er áhersla á að nýtt starfsfólk upplifi sig velkomið til starfa. Haldin eru nýliðanámskeið þar sem starfsfólk fær kynningu á vinnustaðnum, helstu stefnum og gildum Kópavogsbæjar auk hagnýtra upplýsinga.

Kópavogsbær vill bjóða upp á hvetjandi, öruggt og heilsusamlegt starfsumhverfi þar sem starfsfólk er hvatt til reglulegrar hreyfingar og að huga að andlegri og líkamlegri velferð sinni.

Einnig er lögð áhersla á góðan starfsanda þar sem samskipti einkennast af virðingu, umburðarlyndi og jákvæðu viðmóti.

Mannauður

Skipurit Kópavogsbæjar

Kópavogsbær er næststærsta sveitarfélag landsins með um 40 þúsund íbúa og er þriðji stærsti vinnustaður landsins á opinberum vinnumarkaði. Hjá Kópavogsbæ starfa um 2900-3000 einstaklingar á um 75 starfsstöðum.

Starfsemin fer fram á þremur fagsviðum; menntasviði, umhverfissviði og velferðarsviði. Auk fagsviðanna eru fimm miðlægar skrifstofur, skrifstofa bæjarritara, skrifstofa mannauðs- og kjaramála, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar.

Gildi Kópavogsbæjar eru umhyggja, framsækni, heiðarleiki og virðing. Þau endurspeglast í mannauðsstefnu bæjarins og þeirri vinnu sem við vinnum af hendi sem starfsfólk Kópavogsbæjar.

Starfs­fólk Kópa­vogs­bæj­ar

Hjá okkur starfar fjölbreyttur og samheldinn starfshópur sem hefur það að markmiði að skilja þarfir, uppfylla væntingar og veita framúrskarandi þjónustu til bæjarbúa.

Kópavogsbær býður upp á eftirsóknarvert starfsumhverfi sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan. Starfsfólk fær meðal annars frítt í sundlaugar Kópavogs og víða er boðið upp á sveigjanlegan og fjölskylduvænan vinnutíma.

Sem hluti af framtíðarsýn Mannauðsstefnu Kópavogsbæjar hefur starfsfólk okkar áhrif á þróun vinnustaðarins og tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir að deila skoðun þinni!

Ástæða

Aðrar upplýsingar

Fyrir starfsfólk - Kópavogsbær