Beint í efni

Bíla­stæða­sjóð­ur

Bílastæðasjóður Kópavogsbæjar sér um bílastæðamál og hefur eftirlit með stöðvun og lagningu ökutækja í bænum.

Markmiðið er að tryggja örugga og greiða umferð fyrir öll, óháð ferðamáta.

Hlut­verk og starf­semi

Bílastæðasjóður er í eigu Kópavogsbæjar og starfar á vegum bílastæðanefndar.

Stöðuverðir sinna eftirliti og leggja á stöðvunarbrotagjöld þegar ökutæki eru ekki lögð í samræmi við umferðarlög.

Stöðvunarbrotagjöld eru sameiginlegt heiti yfir stöðubrotsgjöld og aukastöðugjöld. Í upphafi verður eingöngu lagt á stöðubrotsgjald í Kópavogi.

Beiðni um end­ur­upp­töku

Hér er hægt að senda inn athugasemd vegna ákvörðunar um álagningu stöðvunarbrotagjalds.

Senda athugasemd.

Gjöld og inn­heimta

Gjaldskrá Bílastæðasjóð gildir frá 1. nóvember 2018.

Brot

Upphæð

Stöðubrotsgjald - stöðvað undir bannmerki, stöðvað á gangstétt, of nærri gangbraut
eða við aðrar nánari tilteknar aðstæður sbr. 110. gr. umferðarlaga nr. 77/2019

10.000 krónur

-14 dögum eftir álagningu

15.000 krónur

-28 dögum eftir álagningu

20.000 krónur

Lagt í bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða

20.000 krónur

-14 dögum eftir álagningu

30.000 krónur

- 28 dögum eftir álagningu

40.000 krónur

Bílastæðasjóður - Kópavogsbær