Atvinnu- og upplýsinganefnd - 327. fundur
í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi
Mætt til fundar
Ritari
- Sigurður Björnsson
Dagskrá fundar

Lagt fram til kynningar minnisblað frá deildarstjóra UT deildar um opinn hugbúnað með vangaveltum um möguleika þess að taka upp opinn hugbúnað hjá Kópavogsbæ.

Nefndin ákveður að skoða málið áfram og óskar eftir því að deildarstjóri UT deildar komi á næsta fund. Sömuleiðis óskar nefndin eftir því að heyra í einhverjum með reynslu af notkun á opnum hugbúnaði.

A) Stefnumót við atvinnulífið. Formaður reifaði hugmyndir um að efna til ""stefnumóts við atvinnulífið"" en dæmi eru um slík fyrirtækjastefnumót erlendis en þau eru e.k. viðskiptafundir fyrirtækja. Á slíkum fyrirtækjafundum leita fyrirtækin samstarfs um t.d. dreifingu á vöru eða þjónustu, leita birgja o.s.frv. Fyrirtæki skrá þátttöku fyrirfram og gefnar eru út skrár yfir þátttakendur og lýsing á því sem viðkomandi er að leita að. Viðskiptafundir eru ákveðnir fyrirfram.

Nefndin ræddi margvíslegar útfærslur á slíku stefnumóti, m.a. aðkomu almennings og hugsanlegt samstarf við önnur sveitarfélög eða samtök.

Nefndin felur formanni nefndarinnar og skrifstofustjóra að kanna betur möguleikana á slíku stefnumóti og taka málið upp aftur á næsta fundi.

B) Miðbær Kópavogs. Ræddar hugmyndir um eflingu Hamraborgarsvæðisins.

Nefndin samþykkir að kanna möguleika á samstarfi bæjarins, forsvarsmanna fyrirtækja og stofnana á miðbæjarsvæðinu.

C) Markaðstorg. Nefndin ræddi hugmyndir um útmarkað á Hálsatorgi í Kópavogi, bæði yfir sumartímann og á aðventu.

Nefndin óskar eftir því að bæjarskipulagið skoði möguleika á markaðstorgi á þessum stað.

D) Tjaldsvæði í Kópavogi. Nefndin beinir þeirri ósk til bæjarskipulagsins að kannað verði hvar mögulegt er að staðsetja tjaldstæði í Kópvogi.

Fyrir liggur skýrsla um störf atvinnufulltrúa sem ráðnir voru til Kópavogsbæjar í samstarfi við Vinnumálastofnun. Ráningartími þeirra rennur út 1. nóvember n.k.

Nefndin leggur til við bæjarráð að samstarfi Kópavogsbæjar og Vinnumálastofnunar verði haldið áfram.

Erindi til Atvinnu- og upplýsinganefndar frá sviðsstjóra Skipulags- og umhverfissviðs

Lagt fram til kynningar bréf frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs varðandi Kópavogshælið. Mál nr. 1006494.

Nefndin felur skrifstofustjóra að afla frekari upplýsinga um málið.