Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3022. fundur

Fjarfundur - Microsoft Teams

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Birkir Jón Jónsson - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hjördís Ýr Johnson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Fjárhagsáætlun 2021

Frá bæjarstjóra, lögð fram drög að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar og stofnana fyrir árið 2021 og drög að þriggja ára fjárhagsáætlun 2022-2024.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að leggja framlagða áætlun fyrir bæjarstjórn Kópavogs.

02

Ósk bæjarfulltrúa Pírata um mat á hvort innkaup á rafverktakaþjónustu fyrir 17. júní hátíðarhöldin hafi verið í samræmi við innkaupareglur

Frá lögfræðideild, dags. 14. október, lagt fram svar við fyrirspurn um hvort innkaup á rafverktaþjónustu fyrir 17. júní hátíðarhöld hafi verið í samræmi við innkaupareglur Kópavogsbæjar.

Lagt fram.

Fundarhlé hófst kl. 9:09, fundi fram haldið kl. 9:22

Bókun:

"Óska eftir upplýsingum um heildarupphæð kaupa Kópavogsbæjar á rafverktakaþjónustu á tímabilinu janúar 2014-júní 2020, og hve stór hluti þeirra fór fram að loknu útboði."

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir.

03

Vesturvör 44. Heimild til veðsetningar

Frá lögfræðideild, dags. 3. nóvember, lögð fram beiðni f.h. lóðarhafa Vesturvarar 44, Nature Resort ehf., um heimild til að veðsetja lóðina.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna veðheimild.

04

Kársnesskóli við Skólagerði - Hönnun

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 3. nóvember, lögð fram skýrsla VSÓ Ráðgjafar ehf. um áhættumat vegna byggingar Kársnesskóla.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa heimild til útboðs til afgreiðslu bæjarstjórnar.

05

Óskað eftir afstöðu Kópavogsbæjar um hugsanlega breytingu á heilbrigðiseftirlitssvæðum

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 2. nóvember, lögð fram umsögn um erindi frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, dags. 22. september, þar sem óskað var eftir afstöðu Kópavogsbæjar um mögulegar breytingar á heilbrigðiseftirlitssvæðum.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fyrir sitt leyti verði unnið að sameiningu eftirlitssvæðis Heilbrigðiseftirlits Hafnafjarðar- og Kópavogssvæðis við Seltjarnarnes og Mosfellsbæ.

Jafnframt beinir bæjarráð því til stjórnar Heilbrigðiseftirlits Hafnafjarðar- og Kópavogssvæðis að stækkun svæðisins leiði ekki af sér kostnaðarauka og aðgerðin hafi það markmið að bæta þjónustuna. Stjórnin skal fá samþykki bæjarstjórna Kópavogs, Hafnafjarðar og Garðabæjar fyrir sameiningunni þegar drög að samningi liggur fyrir.

06

Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna

Frá verkefnastjóra lýðheilsumála, dags. 2. nóvember, kynning á viðhorfum barna og ungmenna í málefnum bæjarins sem er liður í aðgerð 3 í aðgerðaráætlun Barnasáttmálans.

Lagt fram.

07

Dagur íslenskrar tungu 2020

Frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu, dags. 28. október, lagt fram erindi um hátíðarhöld á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember nk.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu menntasviðs.

08

Rekstraruppgjör skíðasvæðanna 2020

Frá skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins, lagt fram rekstraruppgjör skíðasvæðanna fyrir janúar-ágúst 2020.

Lagt fram.

09

Fundargerðir Barnaverndarnefndar

Fundur nr. 112 í 4 liðum. Bæjarráð frestaði framlagningu fundargerðarinnar á síðasta fundi sínum þann 29. október sl.

Lagt fram.

10

Skipulagsráð - 85. fundur frá 02.11.2020

Fundargerð í 8 liðum.

Lagt fram.

11

Fundargerð 890. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30.10.2020

Fundargerð í 33 liðum.

Lagt fram.