Forvarna- og frístundanefnd - 7. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Héðinn Sveinbjörnsson - aðalfulltrúi
- Tjörvi Dýrfjörð - aðalfulltrúi
- Bragi Michaelsson - aðalfulltrúi
- Guðbjörg Linda Udengard - Deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
- Una María Óskarsdóttir - aðalfulltrúi
- Sigmar Þormar - aðalfulltrúi
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Karen Júlía Júlíusdóttir - áheyrnarfulltrúi
Ritari
- Linda Udengaard
Dagskrá fundar
Lagt fram til kynningar erindisbréf forvarna- og frístundanefndar. Samþykkt í bæjarráði í desember 2011.
Kosið í eftirfarandi embætti samkvæmt 2. gr. erindisbréfs, samþykkt með öllum greiddum atkvæðum: formaður Héðinn Sveinbjörnsson , varaformaður Una María Óskarsdóttir og ritari Sigmar Þormar.
Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs.
Sviðsstjóra og deildarstjóra falið að koma athugasemdum á framfæri vegna endurskoðunar á Aðalskipulagi Kópavogs.
Lagt fram til kynningar fréttabréf Molans.
Fréttabréfinu var dreift á öll póstföng í Kópavogi þann 2. mars 2012. Forvarna- og frístundanefnd lýsir ánægju sinni með útgáfuna og þakkar starfsmönnum frumkvæðið og vinnuframlag. Ákveðið að á næsta fundi verði farið í vettvangsferð í ungmennahúsið Molann.