Forvarna- og frístundanefnd - 21. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Héðinn Sveinbjörnsson - aðalfulltrúi
- Tjörvi Dýrfjörð - aðalfulltrúi
- Guðbjörg Linda Udengard - Deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
- Una María Óskarsdóttir - aðalfulltrúi
- Sigmar Þormar - aðalfulltrúi
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
Ritari
- Linda Udengaard
Dagskrá fundar
Þann 29.10.2013 tók forvarna- og frístundanefnd til umfjöllunar drög að erindisbréfi Ungmennaráðs Kópavogs. Í framhaldi af því leggur nefndin til að formlega verði stofnað ungmennaráð í Kópavogi og það taki til starfa haustið 2014 samkvæmt erindisbréfi.
Forvarna- og frístundanefnd leggur til að stofnað verði Ungmennaráð Kópavogs sem taki til starfa haustið 2014 samkvæmt erindisbréfi.
Lögð fram skýrsla frá sumarstarfi ársins 2013 og starfið 2014 kynnt (sumar.kopavogur.is).
Lögð fram skýrsla sumarnámskeiða frá 2013. Verkefnastjóri fór yfir sumarnámskeið 2013, sumarnámskeið 2014, skráningu og upplýsingar á heimasíðu sumarnámskeiða (sumar.kopavogur.is).Skráning hefur farið vel af stað en opnað var fyrir skráningu á Sumardaginn fyrsta. Lögð fram skýrsla frá Skapandi sumarstörfum í Molanum (16-24 ára) frá 2013. Forstöðumaður fór yfir skipulagið sumarið 2014. Sami fjöldi ungmenna verður í verkefninu og árið 2013 eða 26 störf.Lögð fram skýrsla frá Tröð, tómstunda- og atvinnuúrræði fyrir einstaklinga með sérþarfir (16-24 ára). Forstöðumaður fór yfir skipulagið sumarið 2014. Sagði einnig frá Frístundaklúbbnum Hrafninum, Frístundaúrræði fyrir börn með sérþarfir (6-15 ára). Samvinna verður við unglingavinnuna fyrir 13-15 ára.
Lögð fram drög að dagskrá 17. júní hátíðarhalda.
Forvarna- og frístundanefnd þakkar góða kynningu og hvetur Kópavogsbúa til að fagna þjóðhátíðardegi á Rútstúni.
Umsóknir í Forvarnasjóð Kópavogs - Heildaryfirlit.
Í Forvarnasjóð Kópavogs bárust 14 umsóknir vegna forvarnaverkefna. Úthlutað er samkvæmt reglum sjóðsins. Þá ákvað forvarna- og frístundanefnd að hluti af forvarnarsjóði yrði varið í árlegar rannsóknarniðurstöður um hagi og líðan ungs fólks í Kópvogi sem nýtast mun öllum þeim sem vinna að málefnum barna og ungmenna.
Lögð fram umsókn frá Heilsuheilræði efh.um forvarnastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd getur ekki orðið við þessari styrkbeiðni.
Lögð fram umsókn frá ADHD samtökunum um forvarnastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 500.000.
Lögð fram umsókn frá Heilsuheilræði ehf.um forvarnastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 500.000.
Lögð fram umsókn frá Breiðablik-körfuknattleiksdeild efh.um forvarnastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd getur ekki orðið við þessari styrkbeiðni.
Lögð fram umsókn frá Benedikti Braga Sigurðssyni um forvarnastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 500.000.
Lögð fram umsókn frá Spoex, samtök psoriasis og exemsjúklinga um forvarnastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd getur ekki orðið við þessari styrkbeiðni.
Lögð fram umsókn frá Kópavogsskóla- "Hættu áður en þú byrjar" um forvarnastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 65.000.
Lögð fram umsókn frá Hörðuvallaskóla- "Hættu áður en þú byrjar" um forvarnastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 40.000
Lögð fram umsókn frá Íþróttafélaginu HK um forvarnastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd getur ekki orðið við þessari styrkbeiðni.
Lögð fram umsókn frá Smáraskólaum forvarnastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd getur ekki orðið við þessari styrkbeiðni.
Lögð fram umsókn frá Bjargir Forvarnir og fræðsla um forvarnastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd getur ekki orðið við þessari styrkbeiðni.
16
Forvarnasjóður 2014. Ekki meir, fræðsla um forvarnir og úrvinnslu eineltismála í grunnskólum Kópavogs.
Lögð fram umsókn frá Kolbrúnu Baldursdóttur um forvarnastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd getur ekki orðið við þessari styrkbeiðni.
Lögð fram umsókn frá Blátt áfram forvarnaverkefni um forvarnastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd getur ekki orðið við þessari styrkbeiðni.
Lögð fram umsókn frá Vatnsendaskóla um forvarnastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 65.000.
Lagt fram erindi frá Bogfimisetri Íslands dags. 28. apríl s.l þar sem óskað er eftir að fá aðild að frístundastyrkjum Kópavogsbæjar.
Forvarna- og frístundanefnd samþykkir umsókn Bogfimiseturs Íslands um aðild að frístundstyrkjum Kópavogsbæjar með fyrirvara um samþykki íþróttaráðs.
Lögð fram umsókn frá Íþróttafélaginu Glóð um starfsstyrk/iðkendastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita íþróttafélaginu Glóð styrk að upphæð kr. 70.000.
Lögð fram umsókn frá æskulýðsfélaginu KFUM og K um starfsstyrk/iðkendastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita KFUM og K starfsstyrk að upphæð kr. 70.000.
Lögð fram umsókn frá Hjálparsveit Skáta í Kópavogi um starfsstyrk/iðkendastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita HSSK styrk að upphæð kr. 176.280.
Lögð fram umsókn frá Skátafélaginu Kópar um starfsstyrk/iðkendastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að veita Skátafélaginu Kópum styrk að upphæð kr. 874.620.
Lagt fram erindi Hnefaleikafélags Kópavogs dags. 8. apríl s.l þar sem óskað er eftir að fá aðild að frístundastyrkjum Kópavogsbæjar.
Forvarna- og frístundanefnd samþykkir umsókn Hnefaleikafélags Kópavogs um aðild að frístundstyrkjum Kópavogsbæjar.
Lögð fram starfsskýrsla félagmiðstöðva.
Lögð fram starfsskýrsla 2012-2013. Aukin aðsókn í félagsmiðstöðvarnar, sérstaklega í dag- og eftirmiðdagsopnanir.Forvarna- og frístundanefnd minnir á mikilvægi félagsmiðstöðva í forvarnastarfi fyrir börn og unglinga í Kópavogi og lýsir ánægju sinni með starfið.