Forvarna- og frístundanefnd - 16. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Héðinn Sveinbjörnsson - aðalfulltrúi
- Bragi Michaelsson - aðalfulltrúi
- Guðbjörg Linda Udengard - Deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
- Una María Óskarsdóttir - aðalfulltrúi
- Sigmar Þormar - aðalfulltrúi
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
Ritari
- Linda Udengaard
Dagskrá fundar
Andri Lefever verkefnastjóri 17. júní mætir á fundinn til að ræða drög að skipulagningu og dagskrá hátíðarhaldanna.
Rætt um skipulagningu og dagskrá hátíðarhaldanna. Starfsmönnum falið að vinna áfram að vinna að viðburðinum.
Arna Margrét Erlingsdóttir verkefnastjóri mætir á fundinn og kynnir drög að dagskrá Sumardagsins fyrsta.
Sumardagurinn fyrsti er samvinnuverkefni Skátafélagsins Kópa og frístunda- og forvarnadeildar. Hátíðarhöldin fara fram í Fífunni og verða með hefðbundnu sniði. Tómstunda- og íþróttafélögum verður boðið að kynna sumarstarfsemina.
Kynnt námskeiðið "verndun barna" fyrir starfsfólk félagmiðstöðva/ungmennahúss á vegum Blátt Áfram.
Markmið námskeiðisins er að veita starfsfólki öfluga fræðslu og markvissa þjálfun í að fyrirbyggja, þekkja og bregðast við kynferðislegri misnotkun barna. Námsefnið er sérhannað fyrir stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök sem þjóna börnum og unglingum. Námskeiðið er í boði fyrir starfsfólk stofnana á menntasviði.
Kynning á SAMFÉS og dagskrá aðalfundar.
Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi kynnt (SAMFÉS).
Kynnt drög að dagskrá afmælisviku Gjábakka.
Kynnt drög að dagskrá Gjábakka á 20 ára afmæli félagsmiðstöðvarinnar. Dagskrá verður frá 4. maí -11 maí. Hátíðardagskrá í Salnum 11. maí á afmælisdegi bæjarins og Gjábakka. Starfsmönnum falið að vinna áfram að viðburðunum.
Markaðssetning sumarnámskeiða, heimasíða og aðrar auglýsingar.
Rætt um markaðsetningu á sumarnámskeiðum. Heimasíðan sumar.kopavogur.is opnar formlega Sumardaginn fyrsta. Ákveðið að senda út póstkort með upplýsingum um síðuna líkt og s.l sumar á öll póstföng í Kópavogi. Opnað verður fyrir skráningar á námskeið á vegum Kópavogsbæjar þann 3. maí.