Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Forvarna- og frístundanefnd - 27. fundur

í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Guðbjörg Linda Udengard - Deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalfulltrúi
  • Rakel Másdóttir - aðalfulltrúi
  • Rannveig Jónsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sigurður Ingi Hauksson - aðalfulltrúi
  • Ólöf Pálína Úlfarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Stefán Ólafsson - varafulltrúi
  • Arna Margrét Erlingsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Linda Udengaard

Dagskrá fundar

01

Mennta-og menningarmálaráðuneytið-Stefna í æskulýðsmálum.

Lögð fram til kynningar stefnumótun í æskulýðsmálum frá æskulýðsráði, mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Forvarna- og frístundanefnda leggur til að starfsmönnum verði falið að athuga hvort að það sé tilefni til að fara í stefnumótun um frístundamál í Kópavogi og koma með tillögur og kynningu að því hvernig best sé að vinna slíka stefnumótun.

02

Forvarnasjóður Kópavogs 2015

Forvarnasjóður Kópavogs auglýsir eftir umsóknum einu sinni á ári. Markmið sjóðsins er að efla forvarna-og frístundastarf í Kópavogi. Lagðar fram úthlutunarreglur og ákvarða þarf framhaldið.

Forvarna- og frístundanefnd felur starfsmanni að auglýsa eftir umsóknum í Forvarnasjóð Kópavogs fyrir árið 2015.

03

Menntasvið-sumarstarf 2015

Sumartilboð frístunda- og forvarnadeildar eru fjölbreytt. Farið yfir fyrirhugað sumarstarf.

Farið yfir reglur fyrir sumarstörf fyrir 18. ára og eldri hjá Kópavogsbæ sumarið og sumarnámskeið frístunda- og forvarnadeildar. Rætt um vinnu- og tómstundatilboðið Tröð og sumarnámskeiðin hjá frístundaklúbbnum Hrafninum. Skráning á sumartilboð hefst Sumardaginn fyrsta þann 23. apríl 2015.

Önnur mál:

Forvarna- og frístundanefnd biður starfsmanna að kanna stöðu á forvarnaáætlunum/framkvæmdaáætlun hjá grunnskólum Kópavogsbæjar.