Forvarna- og frístundanefnd - 11. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Héðinn Sveinbjörnsson - aðalfulltrúi
- Tjörvi Dýrfjörð - aðalfulltrúi
- Bragi Michaelsson - aðalfulltrúi
- Una María Óskarsdóttir - aðalfulltrúi
- Sigmar Þormar - aðalfulltrúi
- Guðbjörg Linda Udengard - Deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Arna Margrét Erlingsdóttir - verkefnastjóri
- Andri Þór Lefever - starfsmaður fræðslusviðs
Ritari
- Linda Udengaard
Dagskrá fundar
Lagt fram erindi frá meðferðaheimilinu Krýsuvík, þar sem óskað er eftir forvarnastyrk.
Frestað, nefndin lítur jákvætt á málið en felur deildarstjóra að afla frekari upplýsinga.
Lagt fram erindi frá Ástráði, þar sem óskað er eftir forvarnastyrk.
Forvarna- og frístundanefnd samþykkir styrk að fjárhæð kr.100.000,-.
Lögð fram skýrsla um vetrarstarf félagsmiðstöðva 2011-2012.
Frestað til næsta fundar.
Lögð fram skýrsla, Sumarnámskeið 2012.
Lögð fram skýrsla um sumarnámskeið frístunda- og forvarnadeildar. Nefndin óskar eftir heildarskýrslu um öll sumartilboð í Kópavogi sumarið 2012.
Lögð fram skýrsla um Skapandi sumarstörf sumarið 2012.
Lögð fram skýrsla um Skapandi sumarstörf. Forstöðumaður Molans Andri Lefever kynnti sumarstarf Molans og komandi vetrarstarf m.a námskeið fyrir atvinnulaus ungmenni og námskeið í rímnaflæði með fagfólki.